breyting á ýmsum lögum í þágu barna.
Virðulegi forseti. Áður en ég svara þessu er eitt sem mig langaði að nefna líka áðan en ég gleymdi og var enn ein ástæðan fyrir greiningu sem hefur komið út í samstarfi við Ráðgjafar- og greiningarstöðina. Það er aukin eftirspurn eftir greiningum barna af erlendum uppruna. Það er ekki vegna þess að þessi börn endilega greinist - með einhverfu eða annað slíkt, eða mikil þroskafrávik, heldur vegna þess að niðurstaðan er síðan sú að það sé ekkert að viðkomandi barni, það hefði ekki átt að koma í greiningu, það tali bara ekki íslensku og það sé ekki félagslega tengt. Það er eitthvað sem við sem samfélag þurfum að taka miklu betur utan um. Ég held að það sé óeðlilega há tölfræði barna af erlendum uppruna sem eru að koma inn til greiningar til Ráðgjafar- og greiningarstöðvarinnar. Síðan vil ég bara segja: Já, við þurfum að dýpka umræðuna um skólakerfið og hvaða breytingar við þurfum að gera á því. Þar finnst mér og trúi því að vinna sem við erum með hér, m.a. í frumvarpi um nýja skólaþjónustulöggjöf, sé lykillinn að því. En lykillinn að því er líka að taka samtalið við samfélagið, fjölskyldurnar og foreldrana.
Hvert er hlutverk okkar sem foreldra? Hvernig ætlum við að þjónusta foreldrana okkar? (Forseti hringir.) Hvað erum við að gera sem samfélag til að aðstoða þá við að undirbúa börnin betur undir lífið? (Forseti hringir.) Þar held ég að við sem samfélag getum gert betur og ég er hins vegar ekki að ásaka neinn þegar ég segi það.