breyting á ýmsum lögum í þágu barna.
Herra forseti. Ég ætla að gerast svo jákvæður að halda því fram að á dagskrá þingsins í dag séu stór og mikil umbótamál sem muni skipta miklu máli og fagna ég því að þessi mál, bæði þessi mál sem eru félagslegs eðlis og síðan mál á sviði heilbrigðisráðherra sem skipta verulegu máli, séu að koma til umræðu í þinginu. Það er frábært.
Við erum núna að ræða breytingu á ýmsum lögum í þágu barna, eða svokallaðar samþættingu á þjónustu, eins og hv. þm. Helga Vala Helgadóttir nefndi hér að væri svokallaður bandormur, sem það er af því að verið er að breyta lögum sem snúa að þjónustu við börn og ungmenni; lögum um grunnskóla, lögum um framhaldsskóla, lögum um leikskóla, lögum um íþróttir og tómstundir og æskulýðslögum. Þarna er verið að reyna að ná utan um alla þá starfsemi sem snýr að börnum og ungmennum og að við séum ekki hvert í sínu horni að reyna að gera eitthvað með misjöfnum árangri, verður maður að segja. Þess vegna er frábært að þessi lög skuli vera að koma fram. Eins og segir í frumvarpinu er frumvarpið mikilvægur liður í því að styrkja enn frekar umgjörð um þjónustu í þágu barna og stuðla þannig að því að öll börn og foreldrar sem á þurfa að halda hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana.
Maður veltir fyrir sér: Hvað kemur þetta eiginlega? Hvernig stendur á því að Ísland er núna á árinu 2023 að brasa í þessu? Hér hefur verið nefnt að farsældarlögin hafi verið samþykkt á árinu 2021 og þetta sé fylgifiskur þess að þau lög voru samþykkt þannig að samþættingin muni þá verða að veruleika og hægt verði að ná utan um alla þessa starfsemi. En maður veltir fyrir sér hvers vegna þetta gerðist ekki fyrr. Hvers vegna erum við á árinu 2023 að vinna í þessu þegar við vorum búin að undirgangast barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna árið 1992? Hvers vegna tekur þetta svona langan tíma hjá okkur? Við lögfestum ekki barnasáttmálann, eins og hæstv. ráðherra nefndi áðan, fyrr en árið 2013 og síðan eru liðin tíu ár. Einhvern veginn virðist taka langan tíma á okkar litla Íslandi að koma ýmsum réttindamálum í framkvæmd.
Það sem mig langar aðeins að velta vöngum yfir er kannski líka, af því að þarna er ríkisvaldið að leggja til breytingu á lögum, að það verður mikið á herðum sveitarfélaganna að sinna þessu. Grunnskólarnir og leikskólarnir eru á borði sveitarfélaganna, eins félagsþjónusta sveitarfélaganna, en auðvitað koma heilbrigðisstofnanir að málinu og íþrótta- og æskulýðsfélög þurfa að undirgangast þetta. Maður hefur áhyggjur af því að þetta sé ekki fjármagnað þrátt fyrir að hér hafi verið nefnt að það væri búið að ákvarða einhverja fjármuni í þetta. Ég vil t.d. nefna NPA-samningana eða málefni fatlaðs fólks. Halli sveitarfélaga eftir að hafa yfirtekið þann málaflokk veltur á jafnvel tugum milljarða. Maður er auðvitað nervus að þetta verði ekki að fullu fjármagnað og þá er hætta á að sveitarfélögin lendi bara upp við vegg eins og oft áður þegar verkefni hafa verið færð frá ríki til sveitarfélaga.
Mig langar kannski aðeins, af því að við höfum auðvitað ríkar skyldur gagnvart börnunum okkar, að nefna það sem stendur t.d. í ákvæði nr. 2 í barnasáttmálanum þar sem talað er um að öll börn eigi að vera jöfn — öll börn eigi að vera jöfn. Eru þau það? (IngS: Nei.) Erum við að búa til þannig umhverfi á Íslandi öll börn standi jafnfætis? Síðan segir í 3. ákvæðinu: Það sem er börnunum fyrir bestu — það sem er börnunum fyrir bestu. Það rammar kannski bara inn hvað farsæld þýðir. Farsæld þýðir það sem börnunum er fyrir bestu og okkur ber að gera samkvæmt þeim sáttmála sem við höfum undirgengist.
Þó að hér sé verið að rífast um það núna hvort við eigum yfir höfuð að framfylgja þeim sáttmálum eða alþjóðalögum sem við höfum undirgengist þá ber okkur að gera það. Ísland er fullvalda ríki sem hefur heimild til að undirgangast alþjóðasamninga og við höfum m.a. undirgengist þessa samninga. Þannig að jú, ég hef smá áhyggjur af þessu. Ég er einn af þeim þingmönnum sem sitja í þingmannanefnd um farsæld barna og mér þykir það heiður að fá sitja þá fundi og taka þátt í því verkefni. Eitt af mínum síðustu verkum á sveitarstjórnarstigi var að sitja í stýrihópi um innleiðingu á því að sveitarfélagið mitt yrði svokallað barnvænt sveitarfélag. Við sjáum bara í hvaða stöðu við erum. Við erum að rembast við það á árunum 2021, 2022 og 2023 að gera sveitarfélögin okkar barnvæn, sem við áttum að vera búin að gera fyrir a.m.k. áratug síðan þegar við undirgengumst þennan sáttmála.
Hér hefur líka verið minnst á svokallaða biðlista. Við viljum vel og við viljum ná árangri við að láta börnunum okkar líða vel. Við viljum að börn í samfélaginu njóti sama og sams konar réttar. En við erum ekki öll eins í laginu, við erum bara mismunandi í laginu með mismunandi þarfir. Og samkvæmt þessu sem við erum að undirgangast ber okkur ber skylda til að sjá til þess að börn fái þá þjónustu sem hæfir þeim. Eins og hér hefur verið nefnt í pontu: Þessir biðlistar virðast vera þannig að það er ekki hægt að vinna á þeim. Hverju sætir það? Hversu lengi ætlum við að láta það viðgangast að börn tapi stórum hluta af sinni æsku af því að þau hanga á einhverjum biðlista? Við þekkjum það bara í sveitarfélögunum að það er erfitt að fá tíma hjá talmeinafræðingi fyrir börn sem þurfa á því að halda. Hvaða þýðingu getur það haft fyrir lítið barn að fá ekki úrlausn sinna mála hvað það varðar, hvað málhelti varðar? Ég held að við þurfum að taka þetta mjög alvarlega. Það nægir ekki að hafa falleg orð á blaði, það skiptir máli hvað við gerum við þessa samþættingu laganna í framhaldinu. En eins og ég segi finnst mér þetta vera jákvæð byrjun á vonandi árangursríkri niðurstöðu til framtíðar, að við vinnum samkvæmt þessu, við vinnum samkvæmt þeim sáttmála sem við höfum undirgengist og látum það alltaf vera það sem við ætlum að vinna eftir, að það sem sé börnunum fyrir bestu skipti okkur máli og við eigum alltaf að reyna að gera umhverfið þannig að öll börn standi jafnfætis.