Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 97. fundur,  24. apr. 2023.

breyting á ýmsum lögum í þágu barna.

922. mál
[16:45]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessar vangaveltur. Ég er sammála hv. þingmanni. Mér finnst bara ótækt að þetta skuli vera þannig. Ég velti stundum fyrir mér forgangsröðuninni hér inni á þingi og hvernig við útdeilum peningum. Ég hef verið svolítið upptekinn af þessari notendastýrðu persónulegu aðstoð eða svokölluðum NPA-samningum. Okkur ber skylda til að veita notendastýrða persónulega aðstoð. En hvað gerum við? Við útdeilum einhverjum tilteknum fjármunum, einhverri ákveðinni tölu. Svo þegar peningurinn er búinn þá bara gerum við ekkert meir. En við getum verið að deila út fjármunum til erlendra kvikmyndafyrirtækja og það er bara opinn víxill. Við borgum á meðan einhver ætlar sér að koma hingað og framleiða kvikmynd á Íslandi. Það eru engar hömlur á því. Við erum með opinn víxil á kaup á rafmagnsbílum, skiptir engu máli hvort fólk er að kaupa þriðja, fjórða eða fimmta rafmagnsbílinn inn á heimilið. Það er bara opinn víxill á þessu ári. Menn geta bara fengið endurgreiðslu á kaupum á rafmagnsbílum eða hleðslustöðvum eða einhverju. En þegar kemur að því að deila út peningum inn í velferðina eins og bara gagnvart NPA-samningum þá er það bara: Nei, þú varst nr. 101 í röðinni, það var bara pláss fyrir 100. Ég átta mig ekki á því af hverju þetta er gert svona. Ég er bara sammála hv. þingmanni. Við þurfum að endurskoða á hvaða hátt við erum að ráðstafa fjármunum í velferðarsamfélagið okkar. Það er ekkert samfélag ef það er ekki til velferð. Þá getum við bara gleymt þessu. Við búum til samfélag til að reyna að hugsa hvert um annað.