Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 97. fundur,  24. apr. 2023.

breyting á ýmsum lögum í þágu barna.

922. mál
[16:47]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Hér hefur hæstv. ráðherra mælt fyrir frumvarpi sem hefur verið ákall eftir, en frá vorinu 2018 hefur staðið yfir umfangsmikil vinna við breytingar í þágu farsældar barna sem m.a. hefur falist í tæku víðtækri heildarendurskoðun lagaumhverfisins. Hér er verið að samræma skólalöggjöfina, eins og hefur komið fram; lög um leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla, æskulýðsfélög og íþróttalögin. Það er verið að samræma þetta svo þau endurspegli betur farsældarlögin en það hefur einmitt verið ákall þess efnis frá fólkinu sem starfar m.a. í menntamálum, enda mikilvægt að lögin sem það vinnur eftir samræmist farsældarlögum. Skortur á samræmingu getur gert okkur erfiðara fyrir og jafnvel flóknara að fylgja farsældarlögunum enn betur og fastar eftir.

Hér er um að ræða afar gott og mikilvægt mál sem varðar hagsmuni barna og barnafjölskyldna, aðila sem starfa með börnum og barnafjölskyldum, sveitarfélaga, íþrótta- og æskulýðsfélaga og í rauninni allra þeirra sem láta sig hagsmuni barna einhverju varða. Það er afar mikilvægt að við vinnum þessu máli framgang á þessu þingi enda viljum við að þær breytingar sem lagt er upp með með farsældarlögunum komist sem fyrst í gagnið. En frumvarpið er einmitt mikilvægur liður í því að styrkja enn frekar umgjörð um þjónustu í þágu barna og stuðla að því að öll börn og foreldrar sem á þurfa að halda hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana.

Hér hefur verið komið aðeins inn á greiningar og biðlista barna eftir greiningum og það er miður að hér séu biðlistar. Það er alveg þannig. En hæstv. ráðherra kom vel inn á það áðan varðandi mannaflaþörfina í tengslum við greiningar og svo má örugglega líka alveg endurskoða verklagið í tengslum við þetta. En þess ber samt að geta, og mikilvægt að það komi hér fram, að fólk sem starfar m.a. í skólunum okkar, hvort sem það eru leik-, grunn- eða framhaldsskólar, er ekkert alltaf að bíða eftir greiningu. Þau hafa verkfæri, þau hafa þekkingu og grípa oft til þessara verkfæra áður en til greiningar kemur til þess einmitt að vinna í þágu farsældar barna, sem er afar mikilvægt. En greiningin er oft bara staðfesting á grun sem legið hefur fyrir í langan tíma og unnið hefur verið með en hjálpar okkur samt sem áður líka að skilja og færa börnum rétt t.d. á Hljóðbókasafni og fleiru, en bara mikilvægt að við áttum okkur líka á því að fagfólkið okkar er svo sannarlega að sinna vinnu sinni og gera sitt allra besta við þær aðstæður sem eru uppi.

Svo að markmið laganna nái fram að ganga þurfa allir aðilar sem þjónusta börn og fjölskyldur að vinna þétt saman og það er alltaf mikil áskorun að innleiða stórar kerfisbreytingar líkt og þessar. Þeir einstaklingar sem vinna í þeim kerfum sem innleiðingin á farsældarlögunum snýr að verða auðvitað að upplifa líka að lögin séu í samræmi við þá vegferð sem við höfum lagt af stað í. En síðasta ár hefur einmitt ákallið verið, eins og ég kom inn á fyrr í mínu máli, að skólalöggjöfin sé í samræmi við farsældarlögin og verið er að bregðast við því hér. En við þurfum líka að tryggja að skólalöggjöfin endurspegli þær áherslur sem samþætting þjónustu í þágu barna hverfist um. Því er mikilvægt að við áttum okkur á því að innleiðingin strandi ekki á atriðum sem fólk líti á sem ósamræmi í lögum.

Þetta mál hefur einmitt komið fram í umræðu í þingmannanefnd um málefni barna sem ég er svo heppin að fá að starfa í ásamt öðrum góðum þingmönnum og það er afar mikilvægt að mál sem þetta fái umræðu þar inni, þverpólitískt, því að mér finnst mikilvægt og ég held að sé líka faglegt að taka umræðuna með þessum hætti og það verði enn vandaðri vinna sem kemur út í lokin, að þetta sé þvert á flokka, enda er þetta málefni sem snertir okkur öll. En ég vona svo sannarlega að þetta mál fái hraða, góða og vandaða meðferð hér í gegnum þingið og nái vonandi að verða að lögum sem allra fyrst.