Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 97. fundur,  24. apr. 2023.

breyting á ýmsum lögum í þágu barna.

922. mál
[16:52]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Mig langar að byrja á því að taka undir orð hv. þm. Ingibjargar Isaksen um það hvernig þetta frumvarp hefur verið unnið í samvinnu við þingmannanefnd um farsæld barna. Önnur ráðuneyti mættu taka sér það til fyrirmyndar að vinna mál í þverpólitískri samstöðu áður en þau koma hingað inn í þingið vegna þess að þá er hægt að ræða þau á miklu auðveldari nótum hérna inni.

Það er margt í þessu frumvarpi sem gengur út á það að hugsa um velferð barna og að tryggja að velferð og farsæld barna sé með besta móti. Eins og með mörg önnur frumvörp þarf, til að ná fram breytingum, að laga fullt af lögum; lög um leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og jafnvel æskulýðslög og íþróttalög. En það er einmitt það síðastnefnda sem mig langaði aðeins að nota tækifærið og benda á vegna þess að hæstv. mennta- og barnamálaráðherra hefur einnig lagt fram frumvarp í tengslum við samskiptaráðgjafa. Í því er einmitt tekið líka á breytingum á íþróttalögum. Mig langaði að vekja athygli ráðherra á smá, hvað eigum við að segja, misræmi á milli þess hvað er sagt í samskiptaráðgjafafrumvarpinu annars vegar og síðan í því sem er í íþróttalögum. Það hefur að gera með það hvaða aðilum er heimilt að starfa við íþrótta- og æskulýðsstarf með börnum og ungmennum undir 18 ára aldri. Í núverandi íþróttalögum er þeim sem hafa fengið refsidóm vegna kynferðisbrotakafla hegningarlaganna og vegna vímuefnakaflans á síðastliðnum fimm árum óheimilt að starfa með börnum.

Í lögunum um samskiptaráðgjafa er hins vegar líka talað um það að samskiptaráðgjafi taki á hlutum sem tengjast líkamsárásum og öðru slíku. Það vantar í rauninni inn í 16. gr. íþróttalaga að þar sé tekið á því að aðilar sem hafa hlotið dóma fyrir alvarlegar líkamsárásir og/eða t.d. manndráp séu ekki aðilar sem við viljum að séu að sinna börnunum okkar í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Og þar sem bæði í þessu frumvarpi og í frumvarpinu um samskiptaráðgjafa er verið að snerta við þessum greinum í íþróttalögum þá langaði mig að hvetja allsherjar- og menntamálanefnd til að skoða þetta sérstaklega vegna þess að við þurfum að passa að það sé samræmi í því hvaða fólki við erum að leyfa að vera í kringum börnin okkar.

Annars langar mig bara að þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna og öðrum sem sitja í þingmannanefnd um farsæld barna fyrir gott samstarf í þessu.