Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 97. fundur,  24. apr. 2023.

breyting á ýmsum lögum í þágu barna.

922. mál
[17:08]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið en ég velti fyrir mér: Hvort er hann með athyglisbrest eða bara hreinlega neitar að heyra það sem ég segi hér? (Gripið fram í.) Ég hef aldrei vænt hæstv. ráðherra um það að vera ekki með góðan hug í því sem hann er að gera hér. Ég hef aldrei sagt að þetta frumvarp sé ekki til bóta í samræmingu fyrir börn. Ég er að leggja áherslu á það að því miður er engu að síður er vaxandi fátækt og örbirgð í landinu sem bitnar á þessum börnum. Því miður er endalaus biðlisti eftir þjónustu hjá hæstv. mennta- og barnamálaráðherra með allan sinn góða hug. Ég hef aldrei í neinu sagt að hæstv. ráðherra hafi ekki verið að leggja sig fram um að samhæfa kerfi. En það er eitt að samhæfa kerfi og það er annað að börnin fái að njóta þess áður en þau verða fullorðin og komin út í lífið með öllu því sem fylgir því að hafa þurft að vaxa upp á Íslandi sem fátækt barn. Og að ætla að bera sig saman við löndin í kringum okkur þegar hæstv. ráðherra þóknast, eins og gjarnan er hér gert, það er bara stundum, eigum við þá ekki að tala um hvernig vaxtabyrðin er í löndunum í kringum okkur og hvernig verðbólgan er í löndunum í kringum okkur og hvernig okkur tekst að greiða úr því sem er að fara að setja hérna þúsundir fjölskyldna á hausinn ef hæstv. ríkisstjórn ætlar ekki að taka utan um það og gera það af einhverjum brag að byrgja fyrir það að þetta fólk eigi eftir að missa heimili sín í þúsundavís, eins og var hér í efnahagshruninu 2008? En ég ítreka það, hæstv. ráðherra: Hættu að leggja mér orð í munn. Ég hef ekki verið að tala niður þetta frumvarp þitt. Ég er að benda á allt annað í beinu framhaldi af því.