Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 97. fundur,  24. apr. 2023.

breyting á ýmsum lögum í þágu barna.

922. mál
[17:10]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég ætla nú að byrja á því að játa það hér að já, ég held að ég sé með athyglisbrest. Flestir sem hafa unnið með mér geta vottað það og staðfest að sá sem hér stendur er með athyglisbrest. Ég hef reyndar ekki greiningu fyrir því en allir sem vinna með mér geta staðfest það.

Ég vil segja það hér að þegar hv. þingmaður talar um að núverandi ríkisstjórn hafi brugðist börnunum þá hlýtur mennta- og barnamálaráðherra slíkrar ríkisstjórnar að sjálfsögðu að taka það sérstaklega til sín. Þegar ég var að vitna hér til samanburðar við Norðurlöndin, sem sýnir fram á að frá árinu 2019–2021, m.a. meðan Covid-faraldurinn stóð yfir, þá styrkti Ísland stöðu sína þegar kom að stöðu fátækra barna á Íslandi. Það er staða þessara barna er betri 2021 en hún var 2019. Þegar hv. þingmaður vitnar hér til tölfræði, um 44% eða annað slíkt, þá var ég bara að gera slíkt hið sama. Og þegar við berum okkur saman við hin Norðurlöndin, sem við gjarnan gerum, þá stendur Ísland betur þegar kemur að málefnum barna, bæði þegar kemur að fátækt en líka þegar kemur að margvíslegri þjónustu. Ég rakti það hér í mínu máli að þegar kemur að biðlistum eftir þjónustu, af því að hv. þingmaður hrærði þessu öllu saman, fátækt og biðlistum eftir þjónustu, þá rakti ég það hér að við höfum aukið afköstin í kerfinu þar en eftirspurnin hefur verið að vaxa. Ég var að velta því fyrir mér í mínu máli af hverju það væri sem þessi eftirspurn væri að vaxa. Hvað væri það í kerfinu okkar sem við værum að gera vitlaust? Hvað er það? (Gripið fram í: Húsaleigan.)— Ekki varðandi biðlista eftir þjónustu, hv. þingmaður. Biðlistar m.a. eftir greiningum stafa ekki af því hver húsaleigan er á Íslandi. Ég kalla bara eftir því að við förum í þessa skynsamlegu umræðu og sá sem hér stendur skal taka þátt í henni af heiðarleika og vera tilbúinn til þess að taka til sín góðar hugmyndir, hvort sem þær koma frá Flokki fólksins eða öðrum flokkum, vegna þess að sannarlega eiga börnin okkar það skilið að við getum náð saman um þau mál. En ég ætla ekki að sitja undir því að það sé sagt hér að ríkisstjórnin sé ekki að forgangsraða málefnum barna vegna þess að hún er sannarlega að því og hún ætlar að gera það áfram. Og á meðan ég er ráðherra þá verður það gert áfram, hv. þingmaður.