breyting á ýmsum lögum í þágu barna.
Frú forseti. Hæstv. ráðherra talar um tölur og tölur. Það var í janúar árið 2016 sem ég stofnaði Flokk fólksins þegar UNICEF á Íslandi hafði birt tölur varðandi stöðu íslenskra barna sem sýndu 9,1% fátækt meðal íslenskra barna. Síðan er Barnaheill búið að gefa út tölur og UNICEF og eins hefur Kolbeinn Stefánsson unnið úttekt á fátækt íslenskra barna fyrir Velferðarvaktina. Ég er með fjórar úttektir, tvær frá UNICEF, eina frá Barnaheill og svo eina frá Velferðarvaktinni. Fátækt íslenskra barna samkvæmt þessum stofnunum og einstaklingum, sem hæstv. ráðherra segir að ég sé í bullinu með, hefur sem sagt vaxið um 44% á síðustu sex árum. Ef hæstv. ráðherra ætlar að reyna að koma með einhverjar aðrar tölur á blaði og benda þessum sérfræðingum á að þeir séu í bullinu, þá skora ég á hann að gera það. Ég mun gjarnan vilja fá að feisa það og horfast í augu við það því að það hlýtur þá strax að vera til bóta ef hann nær vexti á þessu tímabili niður í 41%. (Gripið fram í.) En það breytir ekki þeirri staðreynd (Gripið fram í.) að ég hræri hér engu saman, engu, og hæstv. ráðherra á alla mína samúð með sinn athyglisbrest og ég er sjálfsagt með minn. Ég ætla að vona að hann sé ekki á biðlista eftir greiningu. En það breytir ekki þeirri staðreynd að svona er Ísland í dag og það er í boði ríkisstjórnarinnar.