Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 97. fundur,  24. apr. 2023.

breyting á ýmsum lögum í þágu barna.

922. mál
[17:21]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil bara nota tækifærið og þakka fyrir þessa umræðu. Rétt til að loka þessari umræðu um tölfræðina sem var hér áðan vil ég segja það að ég held að það sé mjög mikilvægt þegar menn eru að bera saman tölfræði að blanda ekki saman því sem kemur frá UNICEF annars vegar og Barnaheill hins vegar vegna þess að það er ekki sami grunnur sem þar býr að baki. Þegar við erum að ræða tölfræði, (Gripið fram í.) og ég er sérstakur áhugamaður um að við notum tölfræðina miklu meira í öllu sem við erum að gera, þá þurfum við að hafa hana rétta þegar við komum með hana. Ég ítreka það hér að það er ekki hægt að bera saman tölfræði frá Barnaheill annars vegar og UNICEF hins vegar vegna þess að það eru ekki sömu forsendur sem þar búa að baki en þetta gefur ákveðna vísbendingu. Þá er líka sú vísbending að sýna okkur að það hafi verið að ganga vel síðustu 2–3 árin þegar kemur að þessu. Við stöndum okkur mjög vel í samanburði við önnur lönd. En hins vegar vil ég segja, bara til að loka þessu algjörlega, að ég deili þeirri ástríðu og þeim krafti sem er í hv. þm. Ingu Sæland. Það þarf nefnilega svona ástríðu til að breyta hlutunum. Við eigum að vinna saman að því að gera það sem við getum til að ná þessum tölum enn meira niður. Við erum hins vegar á einum besta stað hér í allri Evrópu þegar kemur að þessum málum og þá þurfum við að velta fyrir okkur: Hvernig getum við gert það? Ég er nefnilega ekki viss um að það sé einvörðungu gert með því sem hv. þingmaður kom inn á varðandi skattlagningu og breytingu á henni.

Við nefndum tómstundir hér áðan. Þess vegna eru þessi lög hér, þ.e. lög um farsæld barna, svo mikilvæg vegna þess að þau tvinna saman allt kerfið okkar í því að grípa þessi börn og tryggja þeim það að þau séu nær því að fá það sama og börn okkar hinna. Það er svo mikilvægt. Það eru breytingarnar sem við erum m.a. að ræða hérna varðandi það hvernig þú tengir íþróttirnar, tómstundirnar, félagsstarfið og skólana inn í þetta allt saman, vegna þess að það er með samstarfi þessara aðila sem þú getur gripið fleiri af þessum börnum. Ég trúi því svo innilega að með því að okkur takist að innleiða þessi lög og takist að innleiða breytta hugsun úti í sveitarfélögunum, í íþróttafélögunum, inni í skólakerfinu og alls staðar með það að markmiði að kerfið okkar tali saman til að grípa þessi börn, þá getum við aðstoðað fleiri börn við að taka þátt. En eitt af því sem báðar þessar skýrslur gagnrýndu var þátttaka barna í íþrótta- og tómstundastarfi vegna þess að við vitum hvaða skiptir miklu í því að valdefla þessi börn og tryggja að þau geti náð þeim þroska og því sem þarf til að ná þeirri farsæld sem við skilgreinum í þessum lögum.

Síðan vil ég bara segja það að þær athugasemdir sem komu hér fram frá hv. þingmönnum eru bara mjög góðar, m.a. varðandi fjármagnið sem hv. þm. Guðbrandur Einarsson og fleiri komu hérna inn á. Það er eitthvað sem við þurfum við innleiðingu farsældarlaganna, að velta fyrir okkur á hverjum einasta tímapunkti: Hvernig er okkur að takast þegar kemur að fjármagninu í löggjöfinni? En ég vil þó segja það að það er mjög mikilvægt í þeirri umræðu. Í fyrsta lagi er það auðvitað þannig að Samband íslenskra sveitarfélaga er með okkur í þessari vinnu og í þessum greiningum og nú erum við að fá upplýsingar frá sveitarfélögunum, eins og ég nefndi, um kostnaðinn við innleiðinguna o.s.frv. Það er mjög mikilvægt að hafa hugfast líka að við settum okkur það markmið hér á Alþingi að við ætluðum líka að greina hinn hagræna ávinning fyrir ríki og sveitarfélög af því að ná að grípa þessi börn fyrr vegna þess að eitt barn sem við ekki náum að grípa snemma og lendir kannski á versta mögulega stað kostar líka gríðarlegar fjárhæðir, bæði fyrir ríki og fyrir sveitarfélög. Við erum að ræða stöðu barna með fjölþættan vanda — við eigum kannski ekki að tala um peninga þegar við tölum um börn — þar sem kostnaður sveitarfélaga getur hlaupið á bilinu 100–120 millj. kr. á ári. Hvað hefði mátt eyða miklu fjármagni í það að grípa það barn fyrr til að forða því að svona mikill kostnaður félli til og þá hvað varðandi lífsgæði þessa barns og möguleika þess til framtíðar? Það er eitthvað sem við þurfum líka að reyna að meta ávinninginn af. Þess vegna nefndi ég að þegar við erum að byrja að fá ávinning af því inni í einstaka sveitarfélögum að þau séu byrjuð að ná að loka barnaverndarmálum, sem eru dýr mál fyrir sveitarfélög, með því að láta skóla og félagsþjónustu vinna saman, þá er auðvitað að byrja að myndast einhver hagrænn ávinningur, ekki bara í núinu heldur líka til allrar framtíðar fyrir þennan einstakling.

En eins og ég segi þá er ég þeirrar skoðunar að þetta sé bara holl og góð umræða og mér fyndist við oftar eiga að eiga umræðu um málefni barna hér.

Ég vil enda á því að segja, af því að ég því átti hérna í hressilegum orðaskiptum við hv. þm. Ingu Sæland, að ég kann mjög að meta þessa einlægni og þennan kraft hennar í þessum málum og ég vona að þó að við höfum átt þessi orðaskipti bitni það ekki á því að hún vinni áfram með okkur að þessum mikilvægu málum hér eftir sem hingað til. (IngS: Takk.)