lyfjalög og lækningatæki.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir að vekja máls á þessu mikilvæga atriði sem snýr að rafrænum fylgiseðlum og í stuttu máli þeirri hagkvæmni sem við höfum verið að leita eftir, m.a. með sameiginlegum innkaupum, og þeim ströngu reglum sem gilda um fylgiseðla með lyfjum og upplýsingum sem þurfa að vera til staðar með þeim.
Ég get fullyrt að markmiðið með þessu frumvarpi er að lögfesta þessa Evrópureglugerð sem snýr að því að mæta þessari ógn og geta brugðist við yfirvofandi birgðaskorti þannig að við getum í rauntíma fylgst með því hvenær og ef skortur verður á tilteknum lyfjum. Hér er einnig verið að bregðast við skýrslu starfshóps hæstv. forsætisráðherra um neyðarbirgðir og snýr þetta fyrst og fremst að því að við höfum tiltækt upplýsingakerfi sem sýnir rauntímastöðu birgða. Það er meginmarkmiðið með þessu, bæði þegar kemur að lyfjum og lækningatækjum. En svo þegar málið kemur inn í þingið og hv. velferðarnefnd þá er auðvitað aldrei útilokað, alveg sama þótt við séum með frumvarpið hér til skoðunar, að skoða slíka þætti þegar við höfum það lengi. Það myndi sannarlega skipta máli að breyta þessu með fylgiseðlana og myndi alveg örugglega hjálpa okkur við að ná til að mynda hagkvæmari innkaupum.