Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 97. fundur,  24. apr. 2023.

lyfjalög og lækningatæki.

938. mál
[19:06]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og vil hvetja hv. velferðarnefnd til að skoða það, þegar hún fer yfir þetta, hvort hægt sé að breyta þessu þannig að við gerum ekki kröfu um fylgiseðla með lyfjum heldur heimilum rafræna fylgiseðla. Ég brýni líka hæstv. ráðherra í því að vera vakandi fyrir þeim breytingum sem hafa verið boðaðar á vettvangi Evrópusambandsins hvað þetta varðar. Ég held að þetta sé ofboðslega mikið hagsmunamál. Við sáum það í Covid að samstaða Norðurlandanna skiptir máli og unnum við vel með hinum Norðurlöndunum. Ég held að þetta sé gott mál hér og við þurfum að sjá til þess að hér séu nægilegar birgðir. En að því sögðu þá held ég líka að við ættum að horfa til Norðurlandanna og samstarfs þeirra hvað þetta varðar. Það er stundum þannig að þegar við erum að horfa til krísuástands og erum tiltölulega nýkomin út úr því þá hættir okkur til að velta því fyrir okkur hvort sú krísa gæti komið aftur. En sjaldnast kemur sama krísan tvisvar og yfirleitt kemur einhver önnur krísa. (Forseti hringir.) Ég vek athygli á því að það er mikilvægt að vera við slíku búinn. Horfum til samstarfs Norðurlandanna og áttum okkur á því að yfirleitt koma upp einhver önnur vandamál en þau sem við höfum glímt við áður.