lyfjalög og lækningatæki.
Frú forseti. Mig langar að byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir að leggja fram þetta frumvarp. Það er gott að við lærum af krísuástandi en það er mikilvægt að við hugsum djúpt og vel um það hvernig við gerum þetta vel. Mig langaði að benda bæði hv. þingmönnum og hæstv. ráðherra á að innan Evrópusambandsins er verið að vinna nýja reglugerð eða nýjan hlut sem kallast hjá þeim, með leyfi forseta, Internal Market Emergency Resilience Act. Þeir hafa gaman af því að búa til eitthvað sem heitir skemmtilegum nöfnum, IMERA. Þar er reiknað með því að taka bæði lærdóminn af Covid en líka að geta búið sig undir margar aðrar tegundir af krísum og m.a. verður fjallað þar um lækningatæki, um lyf, um heilbrigðisstarfsfólk og flutning þess á milli svæða í krísum og annað. Mig langar að benda á að það hefur verið fjallað um þetta tvisvar sinnum í EES/EFTA-nefndinni í Strassborg þegar við höfum verið að heimsækja Evrópuþingið og í bæði skiptin hef ég haldið ræðu fyrir hönd EFTA- og EES-ríkjanna og það er mikilvægt fyrir ráðuneytið og aðra að skoða hvað er að koma þarna, hvort við þurfum að innleiða þetta — eða kannski ekki að innleiða en taka einhverjar hugmyndir þaðan inn í þessa vinnu af því að þar er verið að hugsa dálítið víðar en bara það sem gerðist í Covid.