Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 97. fundur,  24. apr. 2023.

lyfjalög og lækningatæki.

938. mál
[19:11]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni fyrir ábendinguna, hann vísar hér í undirbúning að samþykkt væntanlegrar reglugerðar sem verður lögð til þegar þar að kemur, með leyfi forseta, Internal Market Emergency Resilience Act. Ég hef heyrt umræðu þessa efnis án þess að ég hafi kynnt mér nákvæmlega hvað snýr að þessu en vil bara árétta mikilvægi þess að við, hafandi lært það í gegnum faraldurinn, höfum í huga þessa umræðu um að byggja upp styrk heilbrigðiskerfa að nýju sem tókust á við álag og lærðu að meta eftir því sem á leið hvað samvinnan er mikilvæg og stuðningur ríkja á milli við svona kringumstæður. Þessi reglugerð sem við erum að innleiða hér er að hluta til sprottin af því og í stærra samhengi er þetta mál sem hv. þingmaður vísar hér til. Það blasir hins vegar við, vegna þess að skortur á ýmsum mjög mikilvægum lyfjum hefur verið meiri en alla jafna áður í kjölfarið á faraldrinum, að það er mikilvægt að við komum á, hvað sem öðru líður, miðlægu kerfi þar sem við vitum í rauntíma um birgðir á lyfjum, og mikilvægum lyfjum og lækningatækjum sem við erum að nota alla jafna.