lyfjalög og lækningatæki.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég gef mér það að við eigum fulltrúa í þessum stýrihópi. Það er þannig sem á að vinna þetta. Ég get ekki fullyrt það en ég hef þá tækifæri til að ganga eftir því eftir þessa góðu ábendingu hv. þingmanns og sjá hvernig því hagar til. En það er rétt sem hv. þingmaður kemur inn á, eins og staðan er í dag þá hefur Lyfjastofnun ekki upplýsingar um birgðahald heildsala, einstakra lyfjabúða og heilbrigðisstofnana því að sölutölur á heildsölustigi gefa ekki fullkomlega rétta mynd af notkun lyfja. Þetta er tekið saman vikulega og reynt að halda utan um þetta og ég fer yfir það í lok hverrar einustu viku þar sem þetta má sjá á vef Lyfjastofnunar. Upplýsingar um lyfjanotkun einstaklinga eru m.a. í gagnagrunni embættis landlæknis þannig að við höfum ekki þessar (Forseti hringir.) rauntímaupplýsingar sem við raunverulega þurfum. En það hefur gengið nokkuð vel að bregðast við, t.d. með breytingum á pakkningastærðum o.s.frv., til að bregðast við þeirri stöðu að tilteknar pakkningar séu ekki fáanlegar.