Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 97. fundur,  24. apr. 2023.

lyfjalög og lækningatæki.

938. mál
[19:17]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Mig langar að þakka hæstv. heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórssyni, kærlega fyrir þetta frumvarp því að það er alveg ljóst að það er mjög nauðsynlegt að hafa þessar upplýsingar. Meira að segja sendi ég inn skriflega fyrirspurn fyrir nokkrum vikum þar sem ég spurði akkúrat um þetta og miðað við það svar þá eru til birgðir til u.þ.b. mánaðar af sumum lyfjum og það er kannski ekki langur tími ef innflutningur stöðvast. Raunar er ég að velta fyrir mér hvort þetta hefði ekki þurft að vera löngu komið, hvort það hefði ekki þurft fyrir löngu að fara í þessar ráðstafanir sem þessu fylgja. En jafnframt velti ég fyrir mér: Það er eitt að vita hver staðan er en ég átta mig alla vega ekki á því við að lesa frumvarpið hvernig það er fyrirséð að fylgja því eftir. Nú hef ég lent í því eins og margir aðrir að þegar ávísað er lyfi og það á að fara að leysa það út þá er lyfið ekki fáanlegt, einungis samheitalyf. Samheitalyf geta farið mismunandi vel í fólk og þetta ástand getur varað langtímum saman. Þannig að ég velti fyrir mér: Hvernig sér ráðherra fyrir sér að þessu sé fylgt eftir? Ef það er sett bara á hóp innflytjenda, heildsala, að tryggja þessar birgðir þá er alveg ljóst að það eru allar líkur á því að enginn einn aðili taki það að sér að hafa lyfin til reiðu.