Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 97. fundur,  24. apr. 2023.

lyfjalög og lækningatæki.

938. mál
[19:19]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Indriða Inga Stefánssyni þessa góðu spurningu. Meginmarkmiðið með þessu frumvarpi, að vita þessa rauntímastöðu, vil ég meina að sé mikilvægt óháð því hvort við erum að taka upp reglugerð Evrópusambandsins. Það er mikilvægt að við séum hér að vinna saman, sérstaklega þegar kemur upp vá eins og hér er verið m.a. að bregðast við. Ég get svarað þessu að hluta, þ.e. hvernig þessu verður fylgt eftir, það kemur fram í greinargerð í frumvarpinu hvernig þessu er háttað á Norðurlöndunum og þau eru mislangt komin í að afla upplýsinga um birgðir lyfja til að fylgjast með skorti. Í Noregi til að mynda hefur lyfjastofnunin þar í landi heimild til að fá upplýsingar um birgðastöðu lyfja í heildsölu og til þess þarf hún að fara handvirkt inn í kerfi hverrar heildsölu, sem dæmi. Norðmenn vinna nú að innleiðingu þessarar reglugerðar og uppbyggingu miðlægs kerfis sem safnar þessum upplýsingum á einn stað líkt og lagt er til að gert verði hér á landi með þessu frumvarpi. Þannig er sú skylda lögð á herðar allra þeirra aðila sem halda birgðir að tengjast þessum miðlæga grunni og þá væntanlega fylgjum við því eftir að það sé gert. Í Danmörku eru menn komnir lengra eins og oft er þegar kemur að viðlíka málum, þeir eru með miðlægt kerfi sem heldur utan um birgðastöðu lyfja og 2021 þá bjó félag apótekara í Danmörku til smáforrit sem gerir almenningi kleift að fletta upp lyfjum og fá upplýsingar um í hvaða apóteki þau eru til á lager. En kannski kjarninn í því sem hv. þingmaður spyr um, mjög góð spurning, (Forseti hringir.) er einmitt að fylgja eftir þessari skyldu, að þeir sem halda birgðir tengist þessum miðlæga grunni.