Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 97. fundur,  24. apr. 2023.

lyfjalög og lækningatæki.

938. mál
[19:21]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég heyri það að við hæstv. heilbrigðisráðherra deilum áhyggjum af því hvernig við fylgjum þessu eftir. Það sem ég hef áhyggjur af er að einhver skilvirkasta leiðin til að eitthvað gerist ekki er að biðja hóp um að gera það. Það sem ég myndi gjarnan vilja sjá væri einhvers konar reglugerðarheimild sem hægt væri að beita til þess að tryggja það að ráðstöfun ákveðinna lyfja fari ekki á þann veg að það verði skortur á þeim. Mögulega þarf að vera hægt að tryggja það að lyfjanna verði aflað því að ég geri ráð fyrir því að það sé mismikill hagnaður af þeim lyfjum sem er verið að flytja inn og þá þurfa fyrirtækin að hafa hvata til að skammta lyf.