Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 97. fundur,  24. apr. 2023.

lyfjalög og lækningatæki.

938. mál
[19:23]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ef ég skil hv. þingmann rétt þá kemur hann hér inn á hvatann til að fylgja eftir þeim reglum sem við setjum og til að mynda að tengjast þessum miðlæga grunni sem enginn vafi verður á, og kemur inn á reglugerðarheimild. Mér finnst það ágætisathugasemd vegna þess að þetta er tvíþætt. Við verðum auðvitað að tryggja lífsnauðsynleg lyf og ef markaðurinn gerir það ekki þá hvílir sú skylda á okkur yfirvöldum að gera það. Það sem mun breytast með þessum miðlæga grunni er að við höfum í rauntíma betra yfirlit yfir það í hvaða tilvikum það er og í hvaða flokki lyfja það er. En þetta er mikilvæg ábending hjá hv. þingmanni.