Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 97. fundur,  24. apr. 2023.

lyfjalög og lækningatæki.

938. mál
[19:31]
Horfa

Guðný Birna Guðmundsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég verð að segja að ég fagna þessu frumvarpi um breytingu á lyfjalögum og lögum um lækningatæki. Frumvarpið endurskilgreinir ógn við lýðheilsu og skort á mikilvægum lyfjum auk þess að boða aukið eftirlit með birgðastöðu á landinu. Í frumvarpinu kemur fram sláandi staðreynd, með leyfi forseta:

„Skortur á lyfjum og lækningatækjum hefur verið viðvarandi vandamál sem hefur með sívaxandi hætti haft áhrif á heilsu og líf einstaklinga um áratugaskeið innan Evrópusambandsins en einnig hér á landi. Á árunum 2020 til 2022 bárust Lyfjastofnun 2.747 tilkynningar um lyfjaskort frá markaðsleyfishöfum lyfja …“

Þetta eru tæpar 3.000 tilkynningar um skort á lyfjum á Íslandi á tveggja ára tímabili. Þetta er grafalvarlegt mál fyrir okkur sem eyju með mjög takmarkaða lyfja- og lækningatækjaframleiðslu. Við eigum að gera betur og verðum að tryggja aðgang að nauðsynlegum lyfjum og lækningatækjum og beita öllum ráðum og eftirliti til að koma í veg fyrir skort, sér í lagi þegar kemur að lífsnauðsynlegum lyfjum fyrir samfélagið okkar. Alvarlegur skortur sem við höfum þegar glímt við er til að mynda skortur á bóluefni, skortur á krabbameinslyfjum fyrir einstaklinga í krabbameinsmeðferð og skortur á lífsnauðsynlegum lyfjum fyrir börn líkt og sértækum insúlínlyfjum. Ég fagna þessu því það er mjög mikilvægt að hafa upplýsingar milli Lyfjastofnunar og tengdra aðila um birgðir í rauntíma. Ég verð þó að segja að mér finnst sérstakt að við höfum ekki farið fyrr af stað í þessa mikilvægu vinnu.