Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 97. fundur,  24. apr. 2023.

lyfjalög og lækningatæki.

938. mál
[19:33]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég kem hér bara örstutt í lok þessarar umræðu og þakka fyrir umræðuna og góðar ræður, góð innlegg og góðar ábendingar hv. þingmanna sem hér tóku til máls. Ég er með í huga hér ræðu hv. þingmanns sem talaði á undan mér um þau áhrif sem þetta hefur. Ég ítreka það sem ég kom inn á í andsvari að óháð því að við séum hér að taka upp Evrópureglugerð, jú og að bregðast við góðri skýrslu um mikilvægi þess að vita birgðastöðu mikilvægra lyfja og lækningatækja í rauntíma og meginmarkmiðið er eins og með Evrópureglugerðinni að við getum í tíma brugðist við þeirri vá sem kann að koma upp, þá hefur þetta frumvarp auðvitað mjög jákvæð og mikilvæg áhrif á allt okkar samfélag og gerir Lyfjastofnun kleift að hafa yfirsýn yfir birgðir lyfja og lækningatækja. Lyfjastofnun hefur auðvitað það hlutverk að safna upplýsingum og vakta skort og þörf fyrir lyf og lækningatæki, sérstaklega þau sem eru talin mikilvæg þegar bráð ógn er við lýðheilsu eða meiri háttar atburður stendur yfir en jafnframt þessi lífsnauðsynlegu lyf sem við þurfum hverju sinni, eins og fram kom í umræðunni, vegna fjölmargra sjúkdóma sem við hér í samfélaginu erum að kljást við. Þannig mun frumvarpið hafa afar jákvæð áhrif fyrir þá sem taka lyf sem er hætt við að verði skortur á. Með upplýsingum um birgðastöðu verður hægt að bregðast fyrr við mögulegum skorti á lyfjum. Þá mun frumvarpið hafa jákvæð áhrif á umhverfið þar sem yfirsýn yfir birgðastöðu lyfja leiðir til þess að lyf renna síður út í lyfjageymslum. Það er samfélagslegur ávinningur að hafa þessar upplýsingar og hann er ómetanlegur og getur komið í veg fyrir einmitt þennan skort á mikilvægum lyfjum og lækningatækjum og það tryggir öryggi sjúklinga og heilbrigðiskerfisins enn þá betur.

Hæstv. forseti. Ég þakka þessa góðu umræðu.