Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í gær fékk ég svar við fyrirspurn sem ég beindi til innviðaráðherra varðandi ástand á tengi- og héraðsvegum hér á landi. Niðurstaða þeirrar fyrirspurnar minnar er sláandi. Í svarinu kemur fram að alls séu tengi- og héraðsvegir á Íslandi samtals 6.045 km. Af þeim er bundið slitlag á einungis 1.633 km og því er möl á 4.412 km. Áætlaður kostnaður við að leggja bundið slitlag á tengivegi er um 150 milljarðar og er þá miðað við að kostnaður á hvern kílómetra sé um 70 millj. kr. Kostnaður við að leggja bundið slitlag á héraðsvegi er áætlaður um 115 milljarðar og þá er miðað við að kostnaður á hvern kílómetra sé um 50 millj. kr. Samkvæmt svari ráðherra mun það taka um 60 ár að koma bundnu slitlagi á alla tengivegi en þá er miðað við þá 2,5 milljarða sem lagðir eru sérstaklega í þessi verkefni á hverju ári. Ef við bætum héraðsvegunum við á sama hraða erum við að tala um að það muni taka okkur um 100 ár að leggja bundið slitlag á bæði tengi- og héraðsvegi hér á landi. Það hlýtur hver heilvita maður að sjá að þetta gengur ekki upp. Það er ekki hægt að bjóða þjóðinni upp á þetta á 21. öldinni. Hér á landi eru margir vegir með þeim hætti að fólk leggur líf sitt og heilsu að veði á hverjum degi við það eitt að keyra til og frá heimili sínu. Við skulum hafa það hugfast að þessir vegir eru lífæð okkar Íslendinga; þeir tengja landið, tryggja búsetu og dreifa ferðamönnum sömuleiðis betur um landið.
Ég kalla eftir nýrri hugsun, nýjum lausnum og þjóðarátaki við að útrýma stórhættulegum malarvegum um land allt. Við getum ekki boðið samborgurum okkar upp á þetta næstu 100 árin.