Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

Störf þingsins.

[13:46]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Herra forseti. Í morgun fór fram áhugaverður fundur í umhverfis- og samgöngunefnd, opinn fundur þar sem rædd voru markmið og stefna íslenskra stjórnvalda í loftslagsmálum. Þangað komu m.a. fulltrúar Samtaka iðnaðarins, fulltrúar umhverfisverndarsinna og síðan heil hersing frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu með hæstv. umhverfisráðherra, Guðlaug Þór Þórðarson, í broddi fylkingar. Það var margt áhugavert sem kom fram á fundinum en það sem kannski situr helst eftir er sú brýna nauðsyn sem blasir við að við hér í þessum sal tökumst á hendur það verkefni að ræða atvinnustefnu fyrir Ísland. Afstaða hæstv. orkumálaráðherra, að horfa skuli til þess að forgangsraða orku sem til er hverju sinni til orkuskipta, þýðir í raun að það verða miklu meiri takmarkanir á annarri uppbyggingu atvinnustarfsemi en annars væri. Þetta er ákvörðun sem er ekki hægt að taka inni á kontór í umhverfisráðuneytinu. Þetta er ákvörðun sem þarf að taka á grundvelli miklu víðtækari umræðu en getur nokkurn tíma átt sér stað þar. Ég vil þess vegna beina því til virðulegs forseta að hafa forgöngu um að þessi mál verði rædd hér. Þetta verður að ræðast á miklu víðtækari grundvelli, eins og ég segi, en inni á skrifstofu í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu. Það er gríðarlega mikilvægt að atvinnustefna liggi fyrir. Ef til að mynda á að þrengja að iðnaði í landinu þá er þetta fín leið til þess. Ef stjórnvöld ætla að segja að þau ætli að forgangsraða allri orku í orkuskiptin þá verður mjög takmörkuð önnur uppbygging næstu árin á meðan það er afstaðan. Á meðan við finnum okkur innan þess regluverks sem Evrópusambandið hefur formað og erum þátttakendur í því þá getum við ekki látið svona ákvörðun atvikast bara einhvern veginn heldur verðum við að ræða það hér í þessum sal. Þetta er gríðarlega mikilvægt.