Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

Störf þingsins.

[13:50]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Virðulegi forseti. Í dag eru margir sorgmæddir, margir að fylgja ungmennum sínum og ástvinum til grafar vegna þess faraldurs og þess ógnarástands sem hefur skapast í samfélaginu af völdum ópíóíða. Það er sorglegt til þess að vita að þessi mörgu ótímabæru dauðsföll mætti koma í veg fyrir með lyfinu naloxone, með því að gefa það frjálst í lausasölu, lyfi sem er í formi nefúða sem í raun dregur úr eitrunaráhrifum. 1. júlí í fyrra var þetta lyf sett í Frú Ragnheiði og Rauði krossinn og heilbrigðisstofnanir hafa getað nýtt sér það þegar þau fá fólkið okkar, unga fólkið okkar, til sín við dauðans dyr. Ég segi: Þetta er gríðarlega alvarlegt mál. Það er neyðarástand í samfélaginu. Ég held að ég sé búin að koma hundrað sinnum hingað upp og kalla og hrópa úr þessum ræðustóli eftir raunverulegum aðgerðum til þess að koma í veg fyrir, ef þess er nokkur kostur, ótímabær dauðsföll ungmenna á Íslandi.

Það var viðtal við framkvæmdastjóra SÁÁ í gær. Hvað segir hún? Tíu ungmenni hafa dáið frá áramótum, sem hafa í raun verið að nýta sér þjónustuna á Vogi, hafa fallið og hafa viljað koma aftur, þau eru á biðlista og hvaðeina annað sem er. Naloxone, þetta lyf sem er ekki ávanabindandi, það er ekki skaðlegra en panodil sem er selt hér úti í apóteki, gæti komið í veg fyrir stóran hluta af þeim ótímabæru dauðsföllum sem við erum að horfast í augu við í dag ef heilbrigðisyfirvöld myndu einungis leyfa það í lausasölu. Ég hvet heilbrigðisráðherra til dáða um leið og ég votta öllum þeim sem eru að ganga í gegnum þessar hörmungarsorgir mína dýpstu samúð.