Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

Störf þingsins.

[13:53]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ég hef gaman af fyrirspurnum enda er margt í þessu blessaða stjórnkerfi okkar sem stundum virkar dálítið mótsagnakennt. Nýlega gerðu hrafnarnir í Viðskiptablaðinu athugasemdir við nokkrar fyrirspurnir mínar, sem er gott og blessað, en það vill stundum verða að gagnrýni af þessu falli á milli stafs og bryggju, t.d. í þessu tilviki þar sem ég sendi inn fyrirspurn um íþróttastarfsemi. Ég sendi reyndar inn tvær fyrirspurnir um íþróttastarfsemi, annars vegar til íþróttamálaráðherra, Ásmundar Einars Daðasonar, og einnig til fjármálaráðherra af því að í lögum um virðisaukaskatt er fjallað um það hvernig íþróttastarfsemi er undanþegin virðisaukaskatti. En hver ber ábyrgð á því að skilgreina hvað er íþrótt og hvað er ekki íþrótt, hvað er íþróttastarfsemi og hvað ekki? Það er nefnilega dálítið áhugavert. Getur hæstv. íþróttamálaráðherra skilgreint að einhver starfsemi sé undanþegin virðisaukaskatti eða þarf fjármálaráðherra að kvitta upp á það? Það er kannski augljóst með nýjar íþróttir eins og íþrótt sem heitir „tech ball“ sem er ákveðin íþrótt með fótbolta þar sem fótbolti er nokkurn veginn spilaður á borðtennisborði, það er mjög áhugaverð íþrótt að horfa á. Það yrði líklega tiltölulega auðvelt ef einhver aðili úti í bæ kæmi og segðist vera með starfsemi þar sem ætti að spila þessa íþrótt og spyrði hvort hún gæti flokkast sem íþróttastarfsemi að kvitta upp á að það falli undir að vera íþróttastarfsemi samkvæmt lögum um virðisaukaskatt. Hver á að ákveða það? Það er áhugavert.

En svo er annað eins og t.d. rafíþróttir. Er það íþróttastarfsemi eða ekki? Hver ákveður það? Þetta er ekkert mikið öðruvísi en t.d. skotfimi. Það er ekki mikill munur þar á milli. Er það fjármálaráðherra sem ákveður hvort rafíþróttir séu íþróttastarfsemi sem er undanskilin virðisaukaskatti eða er það íþróttamálaráðherra? Ég spyr.