Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Þann 27. mars sl. vöknuðu íbúar Norðfjarðar upp við sína verstu martröð þegar nokkur stór snjóflóð féllu á bæinn. Tilviljanir réðu því að ekki varð manntjón en þau sár sem þessir atburðir ristu á sálir bæjarbúa munu eflaust taka ár ef ekki áratugi að gróa. Varnargarðar þeir sem byggðir hafa verið fyrir ofan hluta bæjarins sönnuðu gildi sitt og hægt er að fullyrða að þeir björguðu mannslífum þessa nótt. Það er hins vegar mikilvægt að við notum þennan atburð sem sterka áminningu um að byggingu varnargarðanna þarf að ljúka áður en þessir atburðir endurtaka sig og taka mannslíf. Það ber ríkið stóra ábyrgð þar sem það hefur ekki látið alla þá fjármuni sem eyrnamerktir eru til ofanflóðasjóðs renna til sjóðsins. Við þurfum líka að gera bragarbót þegar kemur að því að sinna þeim sem verða fyrir áhrifum náttúruhamfara á borð við þessar. Fyrir nokkrum árum gerði Alþingi breytingar á lögum um Náttúruhamfaratryggingu Íslands til þess að takmarka fjölda smærri krafna sem kæmu inn eftir stórar hamfarir. Þetta var gert með því að hækka sjálfsábyrgð þeirra sem verða fyrir tjóni og geta þau í verstu aðstæðum setið uppi með sjálfsábyrgð upp á rúma hálfa milljón eftir tjón. Það að fólk sem býr á svæði sem ætti að vera varið varnargörðum en ríkið hefur ekki byggt ætti aldrei að þurfa að sitja uppi með stóran fjárhagslegan bagga eftir slíkar hamfarir. Ég hef því ákveðið að leggja fram frumvarp til breytinga á lögum um Náttúruhamfaratryggingu Íslands eftir að hafa fengið góða innsýn frá stjórnendum þar um hvernig náttúruhamfaratryggingar virka og hvaða ástæður lágu að baki þeim breytingum sem Alþingi samþykkti 2018. Ég mun senda þetta frumvarp út til meðflutnings nú í dag og vildi því nota þetta tækifæri til að vekja athygli þingmanna á þessu mikilvæga réttlætismáli.