Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

Störf þingsins.

[14:00]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Undanfarin ár hefur ríkislögreglustjóri ítrekað varað við, með mjög afgerandi hætti, aukinni skipulagðri glæpastarfsemi á Íslandi og hvatt til og kallað eftir aðgerðum til að bregðast við. Við horfum líka upp á fíkniefnafaraldur, ekki hvað síst ópíóíðafaraldur sem borist hefur til Íslands. Nú heyrum við í auknum mæli, viku eftir viku og mánuð eftir mánuð, fréttir af auknu ofbeldi meðal ungmenna og vopnaburði meðal barna og annarra ungmenna. Þetta kallar á viðbrögð stjórnvalda og samfélagsins. Hluti af þeim viðbrögðum hlýtur að vera að innleiða hér aftur ákveðinn aga og skilning á því hvað má og hvað ekki og gefa skólastjórnendum og lögreglu tækifæri til að senda skýr skilaboð og fylgja þeim eftir.

Í New York-borg var á sínum tíma ráðist í aðgerðir sem fylgdu svokallaðri rúðubrotskenningu til að takast á við mikla glæpaöldu þar, sem fólst í því að taka hart á minni afbrotum, rúðubrotum og veggjakroti, gera strax við þar sem skemmdir höfðu verið unnar og fylgja því eftir. Hér er veggjakrot, að mati stjórnvalda, líklega bara list og skortur er á vilja til að fylgja eftir skilaboðum um hvað telst ásættanlegt og hvað ekki. Helstu skilaboð stjórnvalda inn í þetta ástand nú eru ítrekuð frumvörp um lögleiðingu fíkniefna. Það er ekki hægt að taka á vandanum með því að lögleiða glæpina. Við þurfum að gefa lögreglu og öðrum stjórnvöldum hér tækifæri til að takast á við þennan vanda og gera það af þeirri festu sem þessi stigvaxandi vandi samfélagsins kallar á.