tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna.
Virðulegi forseti. Það sem ég á við, ef ég skýri þetta fyrir hæstv. ráðherra, er að það er alltaf talað um maka. Í greinargerðinni er sagt að maki sé einhver sem þú ert giftur eða einhver sem þú ert í skráðri sambúð með. Ég var að spyrja hvort við þyrftum að vera með þessi takmörk. Mig langaði líka að spyrja hæstv. ráðherra varðandi fósturvísa og gjöf á þeim. Það eru ákveðin tilvik þar sem það að geta þegið fósturvísi væri lausn á vandamálum einstaklings sem vill fara í tæknifrjóvgun en það er ekki heimilað í núgildandi lögum og þá er verið að vísa til staðgöngumæðra. En það er ekki það sem ég er að tala um heldur það að geta hreinlega gefið fósturvísi til einstaklings sem ekki getur gefið kynfrumuna sjálfur.