Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna.

939. mál
[14:32]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni athugasemdina og ég tek henni einmitt þannig, með mjög jákvæðum huga. Þetta er auðvitað bara hugtakanotkun. Ég sýni þessu fullan skilning og ég held að þetta sé alveg réttmætt og mun örugglega koma fram í umfjöllun hv. velferðarnefndar og ég tek þessari athugasemd þannig. En ég hef í sjálfu sér ekki, þar sem þetta er ekki efnisleg athugasemd og bið hv. þingmann að virða það við mig, efnismeiri svör við athugasemdinni.