Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna.

939. mál
[14:34]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Óla Birni Kárasyni fyrir andsvarið og að vekja athygli á því að sambærilegt mál er hér, eins og hv. þingmaður fór yfir, með þátttöku allra flokka sem sæti eiga á Alþingi að ég held. Það sýnir viljann til að breyta í þessa veru vegna þess að í kjarna sínum er þetta mjög sambærilegt. Ég hef rætt við hv. þm. Hildi Sverrisdóttur um það einmitt, að mér finnist bara bragur á því að þessi frumvörp séu rædd samhliða og hef jafnframt rætt það við formann hv. velferðarnefndar. Ég held að það geti bara verið stuðningur í því að ég mæli fyrir þessu frumvarpi og skili þeirri vinnu sem var hafin og þessi frumvörp geti stutt hvort annað og það sé svo þingsins og velferðarnefndar að vinna úr því besta sem kemur fram í báðum málum og svo finnum við bara út úr því hvernig við förum með það hér í gegnum þingið.