Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

heilbrigðisþjónusta o.fl.

986. mál
[15:55]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni fyrir hans andsvar og fagna því að hann styðji þetta frumvarp og inntak þess. Ég bind vonir við að við sjáum öll kostina við að bæta úr öryggismenningu. Svo fór hv. þingmaður yfir stöðuna og já, nýting legurýma eins og hv. þingmaður fór yfir er að setja okkur í ákveðinn vanda. Það eykur álagið þegar nýtingarhlutfall legurýma er bara jöfnum höndum árið um kring jafn hátt og það er og á álagstímum, til að mynda á ferðamannatímanum, þá finnur starfsfólkið verulega fyrir því á bráðamóttöku bæði fyrir norðan á Sjúkrahúsinu á Akureyri og hér og svo á bráðamóttöku kragasjúkrahúsanna og þetta verður þungt. Inni á spítalanum þar sem er bara viðvarandi þetta háa hlutfall, yfir 100% hlutfall og jafnvel verið að taka yfirflæði frá bráðamóttöku þá verður þetta auðvitað mjög þungt. Þetta leggst á starfsfólkið og þetta eykur auðvitað hættuna á mistökum og hv. þingmaður fór ágætlega yfir það. Hv. þingmaður spurði um hvaða plan sá er stendur hefur, sem fékk rauða spjaldið frá hjúkrunarfræðingum, en eigum við ekki að fagna því að við eigum þó einhvern tíma fram undan til þessa að ná góðum samningum? Samningar og kjör skipta máli og aðbúnaður skiptir máli. Þetta frumvarp er bara einn liður í því. Við erum líka að vinna í því með háskóla- og nýsköpunarráðherra að fjölga námsplássum hjúkrunarfræðinga og við erum líka að vinna í því að bæta aðbúnað kennslu með því að byggja upp hermi- og færnibúðir og fjölmargt fleira gæti ég farið yfir í seinna andsvari.