Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

heilbrigðisþjónusta o.fl.

986. mál
[15:57]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin og ég get ekki annað en verið innilega sammála honum vegna þess að þetta skiptir gífurlega miklu máli. Eins og kemur fram í þessu frumvarpi þá var dómur á sínum tíma út af mistökum og þar kom fram að viðkomandi manneskja var að sinna fleiri en einu starfi á sama tíma. Álagið var gífurlegt. Þetta sýnir okkur hvernig mistökin verða. Ég veit það ekki, mér finnst svolítið skrýtið þegar við tölum um að það þurfi t.d. að auka kennslu og fjölga hjúkrunarfræðingum, mér finnst það svolítið andstætt því að hjúkrunarfræðingar hafa gert þá kröfu um að það yrði samið við þá, sest niður og samið við þá þannig að það sé viðeigandi starfsumhverfi og viðeigandi laun og annað og það er svo stór hópur þarna úti sem vill ekki vinna við hjúkrun. Það hlýtur að vera fyrst og fremst markmiðið að ná þessum reynsluboltum inn, finna einhvern grundvöll til að fá fólk til að vinna. En það er greinilegt að fólk vill ekki vinna við þessar aðstæður. Við hljótum að geta skilið það. Ég heyri það frá fólki sem er að vinna á sjúkrahúsunum að álagið er gífurlegt og það er stanslaust verið að ná í fólk til að vinna aukavinnu, taka aukavaktir til að reyna að bjarga stöðunni liggur við frá degi til dags. Og svo er auðvitað, eins og við vitum, læknaskortur. Þó að það sé búið að semja núna við hjúkrunarfræðinga þá er eftir að semja við sérgreinalækna. Og ég spyr ráðherra: Hvað er það sem tefur það? Hvernig stendur á því að við getum verið ár eftir ár með hjúkrunarfræðinga samningslausa, sérgreinalækna núna og sjúkraþjálfara og síðan erum við með yfirfullan spítalann og þar inni er líka að fjölga eldri borgurum sem eru bíða eftir að komast í eitthvert annað úrræði? Hvernig ætlar hann að leysa þetta? Meðan þetta er svona óbreytt þá verða mistökin.