heilbrigðisþjónusta o.fl.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni andsvarið og hann dró ágætlega fram það sem við erum að kljást við. Þetta frumvarp er einn liður í því að bæta aðbúnað heilbrigðisstarfsfólks og um leið, þegar við bætum öryggismenninguna, að tryggja öryggi sjúklinga þannig að þetta virkar í báðar áttir. Það er alveg hárrétt sem hv. þingmaður kemur hér inn á. Á einhverjum tímapunkti fyrir allmörgum árum, við þurfum að fara aftur til aldamóta og aðdragandans þar, þá fórum við eins og nánast heimurinn allur eða alla vega Vestur-Evrópuríki með framþróun læknisfræðinnar og meðferða, hjúkrunar, umönnunar og endurhæfingar að draga úr eða fækka legurýmum. Það kemur fram í fækkun legurýmisdaga og fjölda legurýma. Svo getum við spurt okkur að því þegar okkur fjölgar hratt og aldurssamsetningin breytist, komum erlendra ferðamanna, sérstaklega yfir sumartímann, fjölgar stigvaxandi eins og núna síðastliðinn áratug, meira held ég en okkur grunaði, og þessi bylgja skellur á, hvort við fórum kannski of bratt. Eins og hefur komið fram í öðrum skýrslum þá náðum við ekki að byggja nægilega hratt upp önnur úrræði í þjónustukeðjunni, m.a. við aldrað fólk. Við vitum að eftir því sem við verðum eldri þá fjölgar komum á sjúkrastofnanir og þörfin fyrir þjónustu eykst. Þetta frumvarp hér er einn liður í því að bæta úr en við þurfum að gera fjölmargt. Nú erum við að byggja loksins upp spítalann, nú sjáum við hann rísa. (Forseti hringir.) Það verður mjög mikilvægt. En við þurfum að gera mjög margt annað samhliða.