Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

heilbrigðisþjónusta o.fl.

986. mál
[16:03]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Þetta frumvarp virðist mjög skynsamleg ráðstöfun og skýrir að mörgu leyti stöðu sjúklinga þegar eitthvað kemur upp á. Það er auðvitað ekki hægt að horfa fram hjá því hve mikið vinnuálag er í heilbrigðiskerfinu. Mér verður oft hugsað til hver ber ábyrgð og hver tekur ábyrgð á hlutunum. Mér þætti eðlilegast að ábyrgðin sé forstöðumanna stofnananna, að það séu forstöðumennirnir, sem hafa forræði yfir stofnuninni, sem ættu eðlilega að bera ábyrgð.

Mig langar að spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórsson, hvort hann hafi leitt hugann að því hvort gera ætti einhverjar sérstakar ráðstafanir til þess að tryggja einmitt þetta, að tryggja að mönnunin sé ekki þannig að starfsfólkið sé útkeyrt. Það á auðvitað að vera á forræði forstöðumanna og forstöðumenn stofnananna ættu að taka ábyrgð á því hlutverki. Að sjálfsögðu geri ég mér grein fyrir því að það leysir ekki vandamálið sem er fyrir hendi, það vandamál að mönnunin er engan veginn nægjanleg. Við hljótum á sama tíma og við erum að gera svona ráðstafanir að þurfa að gera aðrar ráðstafanir til að tryggja að mönnun heilbrigðiskerfisins sé til lengri tíma fullnægjandi til að uppfylla þær þarfir sem eru fram undan, sem eru gríðarlegar, sérstaklega í ljósi þess að þjóðin eldist og það dregur síst úr þörfinni fyrir umönnun. Við hljótum að þurfa að skoða þetta hvort tveggja, hver ábyrgð forstöðumanna er og hvernig við klárum þessa mönnun til lengri tíma.