heilbrigðisþjónusta o.fl.
Hæstv. forseti. Í seinna andsvari skal ég koma inn á mönnunina. Það hefur sýnt sig að það vekur upp óöryggi þegar málsmeðferð alvarlegra atvika er með þeim hætti sem vísað hefur verið til; ég kom inn á og vísaði í dóm yfir hjúkrunarfræðingi. Það grípur um sig óöryggi. Við getum alveg sett okkur í spor þeirra sem verða óöruggir. Það veldur kvíða og þunglyndi og þetta kemur sérstaklega fram þar sem álag er meira og knýjandi aðstæður, þar sem bráðleiki er mikill, á bráðamóttöku og gjörgæslu, við fæðingar. Þrátt fyrir að fólk hafi eytt tíma úr ævi sinni til að mennta sig — og fagvitund er mjög sterk í heilbrigðisþjónustu — þá getum við alveg sett okkur í spor starfsmanna þegar óöryggið verður mikið; að fólk með góða og breiða menntun leiti í önnur störf. Við erum að kljást við innbyrðissamkeppni á milli atvinnugreina og það er skortur víða í atvinnugreinum, við þekkjum það.
Við þurfum að gera fjölmargt. Þetta frumvarp er liður í því að bæta mönnun til framtíðar. Við þurfum að fjölga þeim sem byrja í grunnnámi. Við þurfum að efla sérnám fyrir þá sem klára grunnnám erlendis. Við þurfum að efla námsaðstöðu. Ég mæli hér fyrir frumvarpi á eftir sem snýr að hámarksaldri heilbrigðisstarfsfólks. Við þurfum að gera fjölmargt til að tryggja mönnunina og samhliða því skipta aðbúnaður og kjör máli, þegar upp er staðið, mengi þessara þátta, þegar við metum hvað við viljum starfa við.