heilbrigðisþjónusta o.fl.
Virðulegur forseti. Við erum hér að fjalla um frumvarp til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu, aðallega um refsiábyrgð heilbrigðisstarfsmanna og rannsókn á alvarlegum atvikum. Þetta er hið besta mál. Það segir sig sjálft að það er ekki eðlilegt að mistök verði vegna þess að heilbrigðisstarfsmenn eru undir álagi, eru að vinna jafnvel tvö, þrjú störf á sama tíma. Slíkt veldur því að það verða mistök, misalvarleg en þau geta orðið mjög alvarleg sem endar jafnvel með því að viðkomandi einstaklingur lifir ekki af þá meðferð sem hann átti að fá. Þetta er eitthvað sem við verðum og eigum að taka á. Eins og hefur komið fram er það um einu sinni í viku sem svona er að gerast og þá verðum við auðvitað að grípa til allra ráða til að byrgja brunninn. Því miður er ekki hægt að gera það afturvirkt en við eigum að reyna að gera allt sem við getum til að koma í veg fyrir að mistökin eigi sér stað vegna þess að þessi mistök eru auðvitað grafalvarleg, þau bitna ekki bara á viðkomandi einstaklingum heldur líka á fjölskyldum þeirra. Því miður hafa átt sér stað mörg mál sem eru mjög sorgleg og það að kenna viðkomandi heilbrigðisstarfsmanni um gengur aldrei upp vegna þess að það er auðvitað stofnunin og ríkisstjórnin og aðstæður í þjóðfélaginu sem valda því að álagið er svona mikið. Eins og hefur komið fram þá er ekkert eðlilegt að það sé yfir 100% álag á innlögnum á sjúkrastofnunum og þegar mesta álagið er þá séum við komin upp í 200–300%. Það segir okkur að þegar einstaklingar þurfa að hlaupa tvisvar, þrisvar sinnum hraðar eða vinna tvisvar, þrisvar sinnum hraðar og þegar það er meira að segja stórlega undirmannað, þá verða mistök. Við þurfum að taka á þessu og sjá til þess að þetta eigi sér ekki stað.
Því miður veit ég að það hafa orðið mörg mistökin og eftir sitja fjölskyldumeðlimir sárir yfir athafnaleysi og því hvernig kerfið virkar. En staðreyndin er sú að það er ekkert hlaupið að því fyrir einstaklinga að komast til læknis. Það er bara meiri háttar mál. Fyrir ekki svo mörgum árum, 20, 30 árum síðan, þá gat maður fengið tíma hjá lækni, heimilislækni, samdægurs eða í vikunni en núna þarf maður að vera með þvílíkar æfingar bara til að komast til heimilislæknis, það er átta vikna bið eða næstum tveir mánuðir. Það segir sig sjálft að það er fáránlega langur tími. En til að geta komist inn í, segjum bara sex, átta vikna bið eftir lækni, þá þarf viðkomandi að vera tilbúinn nákvæmlega að morgni einhvers dags og hefur hálftíma til að fá tíma innan átta vikna. Ef honum tekst það ekki þarf hann að bíða í mánuð og byrja aftur.
Þetta kerfi, meðan við höfum þetta svona, veldur því og mun valda því að það verða mistök, mannleg mistök. Ég hef orðið var við og þekki af eigin raun, t.d. með krabbameinsgreiningar, að það virðist vera hægt að týna sýnum, það er hægt að klúðra hlutunum á einhvern ótrúlegan hátt og svo þegar loksins niðurstaðan skilar sér þá er hún kannski að skila sér einu og hálfu ári eða tveimur árum eftir að viðkomandi fór fyrst af stað. Þá fær hann kannski þá greiningu að hann sé með krabbamein og það sé komið á fjórða stig og það sé ólæknandi. Það er auðvitað algerlega óþolandi að við skulum vera með þetta kerfi og að við skulum ekki einhvern veginn ná að taka á því. Við vitum að manneklan í kerfinu er gífurleg, bæði hvað varðar lækna og hjúkrunarfræðinga. Það segir okkur að það þarf að semja. Það þarf að fá nýja nálgun á þetta. Það segir sig sjálft að það hlýtur að vera mun dýrara fyrir kerfið að vera að keyra alltaf á sömu einstaklingunum, sama hjúkrunarfólkinu, láta það hlaupa tvisvar, þrisvar sinnum hraðar eða vinna tvisvar, þrisvar sinnum hraðar, taka aukavaktir — það náttúrlega brennur út. Það hlýtur að vera hægt að finna einhverja lausn og það segir sig sjálft að einhvern veginn hafa hlutirnir verið látnir danka. Það hlýtur að vera svolítið merkilegt fyrirbrigði að hjúkrunarfræðingar eru að segja: Heyrðu, vá, við fengum samning. Hann var samþykktur en munaði tveimur atkvæðum. Það er fyrsti samningurinn í langan tíma. Það segir okkur að hæstv. heilbrigðisráðherra hefur ár til að taka á þessu og semja við þá og auðvitað þarf líka á sama tíma að semja við sérgreinalækna og sjúkraþjálfara vegna þess að það er í sjálfu sér engin lausn að lækna fólk ef það þarf svo, þegar það er búið, að fara til sjúkraþjálfara og lendir á 100, 200 manna biðlista. Fyrir utan það að þeir sem eru verst settir hafa ekki einu sinni efni á því lengur að fara til sjúkraþjálfara vegna þess að það kostar orðið 2.000 kr. aukalega, hver tími. Þetta segir okkur að það er eitthvað vitlaust gefið í þessu kerfi og það verður að finna lausnir.
Þetta frumvarp er gott að því leyti til að þarna er verið að koma ábyrgðinni yfir á stofnunina sem gerir það að verkum, eða ég get ekki ímyndað mér annað, að stofnunin geri þá kröfu að hún geti sinnt þeim málum sem hún á að sinna almennilega vegna þess að annars, og það segir sig sjálft, má búast við því að það verði mistök. Ég er alveg sannfærður um að það vill enginn lenda í því að þurfa að kæra til landlæknis eða lenda í mistökum í heilbrigðiskerfinu, vegna þess að ég bara segi það, ég þekki það af eigin raun, ég stæði ekki hér í dag ef við hefðum ekki þetta heilbrigðiskerfi. Þá væri ég alveg pottþétt ekki uppistandandi. En það að maður segi: Ég er heppinn, ég slapp í gegnum kerfið, en síðan koma aðrir og þeir eru bara óheppnir, fá ekki sína þjónustu, það eigum við aldrei að sætta okkur við. Við eigum og verðum að sjá til þess að kerfið virki. Þó að við fáum nýjan spítala og sjáum hann rísa upp þá fjölgar rúmum ekkert. Það leysir ekki mönnunarvandann. Það er ekki verið að leysa grunnvandann sem er mönnunarvandinn í kerfinu og álagið í kerfinu. Ég segi bara: Guð hjálpi okkur ef við förum ekki að drífa í því vegna þess, eins og hefur komið fram, að við erum að verða eldri, þjóðin er að eldast og þá eykst álagið og við erum bara rétt að sjá toppinn á ísjakanum í því samhengi. Það er komið fram að þetta verður ekki betra og þess vegna verður að fara að gera eitthvað í því og sjá til þess að kerfið virki, sjá til þess að þeir sem þurfa á þjónustunni að halda fái hana og þeir verði vonandi ekki í þessum hópi, 55–60 manns á ári, sem verður fyrir mistökum í kerfinu með þeim afleiðingum sem það getur valdið. Ég styð heils hugar þetta skref en ég vona svo heitt og innilega að á eftir fylgi virkilegar aðgerðir til að leysa þennan vanda, það verði séð til þess að þeir sem vinna við aðstæður eins og komu fram í dómnum — það getur ekki verið eðlilegt að ætlast til þess að einhver einstaklingur sé að sinna tveimur, þremur störfum og sé jafnvel á gjörgæslu á sama tíma, hlaupi þar á milli og enginn reikni með því að það verði mistök. Í svoleiðis vinnuumhverfi verðum við að reikna með að það verði mistök og þess vegna verðum við að koma í veg fyrir svoleiðis vinnuumhverfi, bara fara í það. Ég vona svo heitt og innilega að hæstv. ráðherra sjái til þess og fari að vinna að því strax vegna þess að það verður að fara að taka á þessu — núna. Við höfum ekki efni á því og megum ekki lenda í því að fleiri verði fyrir læknamistökum með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir viðkomandi einstaklinga og fjölskyldur þeirra.