heilbrigðisþjónusta o.fl.
Herra forseti. Þetta mál er eitt af þeim mikilvægu málum sem við ræðum hér í dag. Mig langaði til að fá að taka þátt í umræðunni því að þetta skiptir okkur miklu máli. Ég get komið hér upp í pontu og bullað tóma vitleysu og gert mistök, það hefur engin áhrif. Það hefur kannski þau áhrif að ég tapi í næstu kosningum, það gæti hugsanlega haft þau áhrif. En ef heilbrigðisstarfsmaður gerir mistök þá hefur það veruleg áhrif. Það skiptir því miklu máli fyrir okkur öll að fækka alvarlegum atvikum innan heilbrigðisgeirans. Þau eru kannski allt of mörg en þau geta stafað af ýmsum ástæðum, ekki bara af því að starfsmaðurinn hafi verið svona lélegur eða hafi hreinlega gert mistök af ráðnum hug. Við verðum bara að átta okkur á eðli starfsins, heilbrigðisstarfsfólk er að vinna með fólk og þeirra starf ræður miklu um það hvernig gengur hjá fólki eftir að það hefur verið í meðhöndlun í heilbrigðiskerfinu.
Við bregðumst misjafnlega við þegar við leitum til læknis. Ég fór sem dæmi í einfalda aðgerð fyrir nokkrum árum en upplifði síðan miklar blæðingar í framhaldinu sem átti ekki að geta gerst. Voru þetta mistök eða var líkami minn bara að bregðast við á einhvern þann hátt sem enginn gat skýrt? Oft og tíðum held ég að við séum að ræða slíka hluti. Það sem einn telur að séu mistök getur annar skýrt með einhverjum þáttum sem snúa hreinlega að líkamlegum viðbrögðum hvers og eins. Það fer ekkert á milli mála að heilbrigðisstarfsfólk, hvar sem er, er oft að vinna við mjög erfiðar aðstæður og undir miklu álagi. Það er bara veruleiki sem heilbrigðisstarfsfólk býr við.
Hvort eitthvað er hægt að gera í þessu — jú, það er væntanlega ýmislegt sem hægt er að gera. En þegar við erum að ræða mistök þá geta þau stafað af mörgum samverkandi þáttum. Þar held ég sjálfur að mönnun og öryggi á vinnustað hafi mikla þýðingu. Það er ekki á ábyrgð starfsmannanna sjálfra heldur er það á ábyrgð þeirrar stofnunar sem hefur með verkefnið að gera og síðan auðvitað stjórnvöld sem á köflum skammta naumt til viðkomandi stofnunar. Mér finnst það ekki skýrt í frumvarpinu hvort færa eigi þessa ábyrgð í auknum mæli frá starfsmanni yfir á stofnunina eða hvort einungis sé verið að bæta við sektarheimild á stofnun þannig að hægt sé að sækja báða aðila til ábyrgðar. Mér finnst það þurfa að liggja skýrar fyrir hvernig þetta eigi að vera.
Það skiptir auðvitað máli að vera með kerfi sem er sanngjarnt og tryggir fullnægjandi upplýsingagjöf til allra aðila, líka til þeirra sem að eigin mati verða fyrir læknamistökum. Þá þarf að fara fram ítarleg rannsókn og eftirfylgni án þess að verið sé að fara í nornaveiðar. Ég velti fyrir mér hvort farið hafi verið yfir reglur sem gilda um þessi atriði annars staðar á Norðurlöndunum, t.d. Svíþjóð. Ég held að við getum, eins og svo oft áður, lært margt af frændum okkar í þessum efnum.
Eins og ég nefndi hér er rétt og eðlilegt og mikilvægt að við hugum að rétti sjúklinga og aðstandenda þegar kemur að því að veita upplýsingar í öllum tilvikum, líka þegar þau sjálf eru ekki að tilkynna um atvik. BHM bendir á þetta í samráðsgáttinni en þetta hefur ekki verið skrifað inn í frumvarpið, held ég, eða ég hef alla vega ekki séð það. Þetta er ótrúlega viðkvæmt, eins og ég segi, en það er rétt og eðlilegt að við höfum um þetta skýrar reglur.
Í mörgum þessum málum hafa komið fram umsagnir, m.a. frá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga. Þar segir um 2. gr. að félagið fagni áformum um ábyrgð rekstraraðila óháð því hvort sök starfsmanns sé sönnuð en telur útfærsluna ekki vera í samræmi við markmiðið. Félagið vill færa refsiábyrgðina alfarið frá heilbrigðisstarfsfólki til rekstraraðila á meðan ákvæðið tryggir fyrst og fremst að einnig sé hægt að sekta rekstraraðila. Maður veltir fyrir sér hvort verið sé að búa til grátt svæði þegar það er verið að breyta þessu.
Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu hafa einnig skilað inn umsögn. Þar er í raun og veru verið að mótmæla þessu. Samtökin telja of langt gengið í að innleiða refsiábyrgð gegn rekstraraðilum án þess einu sinni að því fylgi kröfur um að hægt sé að sýna fram á að refsivert atferli hafi átt sér stað.
Við þekkjum mörg svona atvik. Ég þekki slíkt úr minni heimabyggð. Hér hefur verið bent á atvik þar sem starfsmenn hafa verið ásakaðir um eitthvað og það hefur hreinlega farið með þá. Þeir hafa gjörsamlega verið óvarðir. Það er auðvitað hægt að ausa yfir starfsmenn einhvers konar óhróðri sem gerir það að verkum að þeir treysta sér ekki til að vinna starf sitt áfram. Það er því nauðsynlegt og eðlilegt að við leitum leiða til að verja þessa starfsmenn fyrir áreiti og ásökunum því að þetta eru kannski þeir starfsmenn sem vinna þau störf sem eru hvað mest útsett fyrir áreiti. Ég vil því hrósa heilbrigðisráðherra fyrir að koma með slíkt mál fram.