heilbrigðisþjónusta o.fl.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Guðbrandi Einarssyni fyrir hans ræðu. Hv. þingmaður velti hér upp mjög veigamiklum atriðum sem ég er ekki í vafa um, eins og velt var upp í 1. umr., að muni koma upp í umfjöllun hv. velferðarnefndar og alveg örugglega í umsögnum, af því að hv. þingmaður fór yfir þær umsagnir sem hafa komið fram í samráðsgátt. Það er árið 2015 sem þessi góða skýrsla kemur fram og við megum ekki gleyma að meginmarkmiðið er að tryggja rétt sjúklinga samhliða því að styrkja aðbúnað og öryggi heilbrigðisstarfsfólks. En spurningin lýtur að refsiábyrgðinni sem er í dag í hegningarlögum, þessari hlutlægu refsiábyrgð, hvort verið sé að afnema refsiábyrgð heilbrigðisstarfsmanna, hvort það er raunverulega hægt, og varpa ábyrgðinni alfarið yfir á heilbrigðisstofnunina. Því er til að svara að frumvarpið felur ekki í sér afnám refsiábyrgðar heilbrigðisstarfsfólks, svo að það sé bara sagt skýrt hér. Hegningarlögin eru auðvitað þannig í dag að það er snúið að koma á framfæri hlutlægu refsiábyrgðinni en það er raunverulega ekki hægt að afnema refsiábyrgð einnar starfsstéttar, einkum með hliðsjón af jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Þess vegna erum við að horfa til fyrirkomulagsins, af því að hv. þingmaður kom inn á samanburð við aðrar þjóðir, sem gildir í Noregi. Það er nánast verið að taka það upp hér. Í sérákvæði er þá refsiábyrgð heilbrigðisstofnunar og rekstraraðila færð í lög og dregið úr þessum þrýstingi á (Forseti hringir.) að finna blóraböggul, finna einstaklinginn, þannig að við getum bætt úr því sem miður fór og bætt verklagið.