Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

heilbrigðisþjónusta o.fl.

986. mál
[16:34]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Ég heyrði það í upphafsræðu hans að megintilgangurinn væri að fækka alvarlegum atvikum, sem er auðvitað það sem við viljum gera. Við viljum fækka alvarlegum atvikum innan heilbrigðiskerfisins. Við hljótum að horfa til þess af hvaða ástæðum mistök eiga sér stað. Auðvitað er það alltaf sá sem heldur á skurðarhnífnum, viðkomandi starfsmaður, sem að lokum gerir eitthvað sem leiðir til þess að mistök eiga sér stað. En það er bara ýmislegt í þessu, aðstæður geta gert það að verkum að viðkomandi starfsmaður gerir mistök. Þá er bara spurningin: Felur það í sér refsiábyrgð starfsmanns eða stofnunar? Bara aðbúnaður, aðstæður, vinnutími — það gæti t.d. verið að viðkomandi hafi þurft að vinna umframvakt vegna neyðartilvika sem koma upp. Eða að ekki séu til bestu fáanlegu tæki sem þarf að nota til að vinna við ákveðin tilfelli.

Ég skil vel að ekki sé hægt að afnema refsiábyrgð, hún hlýtur alltaf að vera til staðar. Við þekkjum dæmi um það, reyndar ekki á Íslandi, að starfsmenn í heilbrigðisþjónustu hafa hreinlega vísvitandi verið að vinna fólki mein. Það er ekki hægt að taka það frá skjólstæðingum að þeir kæri slík atvik eða aðstandendur. En vonandi verður þetta til þess að setja meiri kröfur á þær stofnanir sem við erum að reka hér.