heilbrigðisþjónusta o.fl.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir — ég veit ekki hvort ég á að kalla þetta andsvar eða hugleiðingar. Mér finnst gott að við förum í vangaveltur hér í þingsal því að það skiptir okkur máli í þessari vinnu. Ég er áheyrnarfulltrúi í velferðarnefnd og þess vegna sýni ég þessum málum áhuga. Þetta skiptir máli. Þetta er líka nærþjónusta við fólk í heimabyggð og það skiptir okkur máli hvernig með þá þjónustu er farið. Maður vill geta upplifað það þannig að þegar maður kennir sér krankleika og fer inn á sjúkrahús eða heilbrigðisstofnun þá geti maður treyst því að koma betri þaðan út en maður fór þangað inn. Það er auðvitað meginmarkmiðið að við fáum lækningu við sjúkdómum og ekki sé verið að gera mistök á þeirri leið sem þarf að fara til að gera fólk betra eftir að hafa dvalið inni á sjúkrastofnun.
Regluverkið í kringum þetta er auðvitað mjög flókið og það er skiljanlegt að ekki sé hægt að ná utan um alla þá þætti eða tryggja sig fyrir öllum þeim atriðum sem hæstv. ráðherra nefnir hér. Við hljótum samt alltaf að horfa til þess að bestu aðstæður þurfi að vera til staðar. Það á að vera á ábyrgð stjórnvalda að sjá til þess að ekki sé verið að setja starfsmenn í einhverjar þær aðstæður sem geta gert það að verkum að mistök eigi sér stað. Ég held að það vilji oft brenna við að við höfum ekki skapað fólki nægilega góðar aðstæður. Ég vil bara nefna bráðamóttökuna heima hjá mér, í Keflavík eða á Suðurnesjum, hún hefur ekki verið til mikillar fyrirmyndar hingað til þó að verið sé að breyta því núna. Þetta býr til aðstæður sem geta kallað á mistök. Það er þá á ábyrgð okkar hér að skaffa fjármagn til að skapa bestu aðstæður sem þurfa að vera til staðar.