Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

heilbrigðisstarfsmenn.

987. mál
[16:53]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Mig langar til að byrja á því að lesa upp úr frumvarpinu það sem ég rak augun í og vekur athygli mína. Þar stendur, með leyfi forseta:

„Með frumvarpinu er lagt til að sett verði tímabundin heimild í lög um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, sem kveður á um undanþágu frá reglu 2. mgr. 43. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Samkvæmt undanþágunni verður heimilt á tímabilinu 1. janúar 2024 til 31. desember 2028 að ráða heilbrigðisstarfsmann með tímabundnum ráðningarsamningi til mest tveggja ára í senn allt til 75 ára aldurs í starf við veitingu heilbrigðisþjónustu hjá ríkinu, þrátt fyrir að hann sé orðinn 70 ára og hafi því verið sagt upp af þeirri ástæðu, enda hafi hann enn heilsu og áhuga til að starfa sem heilbrigðisstarfsmaður. Með því yrði aldurshámark heilbrigðisstarfsmanna ríkisins fært til samræmis við gildandi aldurshámark heilbrigðisstarfsmanna sem veita heilbrigðisþjónustu á eigin starfsstofu.“

Og síðar segir:

„Í ákvæðinu kemur sérstaklega fram að starfið sem ráðið sé í á grundvelli ákvæðisins þurfi að felast í veitingu heilbrigðisþjónustu til sjúklinga, og er hér átt við bein klínísk störf. Nánar tiltekið þarf starfið að felast í beinum samskiptum við sjúklinga eða stoðþjónustu og rannsóknum á heilbrigðisstofnunum í tengslum við þjónustu við sjúklinga, t.d. rannsóknir á sýnum. Einnig er gert ráð fyrir að starfið geti samhliða beinum klínískum störfum eða að öllu leyti falist í handleiðslu yngra heilbrigðisstarfsfólks og nema. Undanþáguheimild ákvæðisins gildir því ekki um ráðningu í yfirmanns- eða stjórnunarstöður hjá ríkinu þar sem mönnunarvandi í heilbrigðiskerfinu liggur ekki þar. Ákvæðið gerir kröfu um að starfið sé á heilbrigðisstofnun og kennslustörf við heilbrigðisgreinar í menntakerfinu falla því utan heimildarinnar.“

Hæstv. ráðherra nefndi hér að þessir starfsmenn myndu njóta betri kjara og réttinda. Ég velti vöngum yfir því hvaða betri kjör það geta verið, hvaða auknu réttindi það geta verið. Mér sýnist á öllu að verið sé að minnka réttindi þessara starfsmanna, ég fer aðeins betur yfir það á eftir.

Manni finnst sérkennilegt að verið sé að veita undanþágur fyrir einn tiltekinn hóp vegna atriðis sem er skilgreint sem mönnunarvandi án þess að reynt sé að skilgreina í hverju sá mönnunarvandi er fólginn né heldur er reynt að koma í veg fyrir hann. Stafar þessi mönnunarvandi af aðstæðum á vinnustað? Stafar hann af öryggi starfsmanna? Stafar hann af of miklu álagi eða of mikilli vinnu? Stafar hann kannski bara af því að verið er að greiða of lág laun? Við vitum um heilbrigðisstarfsmenn sem kjósa að vinna önnur störf en þeir hafa menntað sig til og það hlýtur að vera gild og góð ástæða fyrir því.

Við sáum það t.d. í atkvæðagreiðslu hjúkrunarfræðinga, eins og nefnt hefur verið hér í dag, um nýjan skammtímasamning, að einungis munaði tveimur atkvæðum á að samningurinn væri felldur. Þá voru laun hjúkrunarfræðinga ákveðin með gerðardómi árið 2020 og var mikil óánægja með þá niðurstöðu. Þessa stöðu þarf að leysa en bráðabirgðaheimild í lögum um að fólk geti unnið lengur mun ekki leysa þennan vanda. Heilbrigðiskerfið mun ekki gera neitt annað en að stækka og því þarf að gera þessi störf eftirsóknarverð til þess að þeir sem hafa menntað sig til þess að vinna innan þess fáist til að vinna þar og að nám í heilbrigðisfræðum verði eftirsóknarvert.

Mig langar, virðulegi forseti, til að fara hér aðeins yfir lífeyrisgreiðslur. Hæstv. ráðherra nefndi þær einnig í ræðu sinni hér. Í kaflanum um það atriði er þetta að finna:

„Lagaskylda til greiðslu iðgjalds til skyldutryggingar lífeyrisréttinda fellur niður við 70 ára aldur og gerir frumvarpið því ekki ráð fyrir slíkum greiðslum heilbrigðisstarfsmanna á aldrinum 70–75 ára. Á sama tíma fellur skyldubundið lífeyrisiðgjald launagreiðanda vegna launþega einnig niður vegna aldurs. Launþegar geta þó kosið að greiða enn þá iðgjald til viðbótarlífeyrissparnaðar og gerir frumvarpið ráð fyrir að sömu reglur gildi um slíkar greiðslur og mótframlag vinnuveitanda þó svo að starfsmaður sé orðinn 70 ára að aldri. Vísast hér til laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, t.d. varðandi viðbótarlífeyrissparnað, sbr. lög nr. 55/2022, og ákvæða kjarasamninga um mótframlag vinnuveitanda. Með þessu móti gefst heilbrigðisstarfsfólki sem náð hefur 70 ára aldri tækifæri til að starfa áfram, fresta lífeyristöku, safna auknum viðbótarlífeyrisréttindum í séreignarsjóð með tilheyrandi mótframlagi vinnuveitanda og búa við rýmri kost þegar eftirlaunataka þeirra hefst, sem gera má ráð fyrir að verði alla jafna í síðasta lagi við 75 ára aldur.“

Hæstv. ráðherra nefndi það áðan að ekki væri hægt að hrófla við greiðslu lífeyrisgreiðslna. Samt er því haldið fram í frumvarpinu að hægt sé að breyta þessu hvað varðar viðbótarlífeyrissparnað en ekki hinn skyldubundna sparnað. Mig langar bara að vekja athygli á því að með þessu er verið að minnka launakostnað viðkomandi stofnunar um 11,5% vegna þess að framlag vinnuveitenda í lífeyrissjóð er 11,5%. Ef ekki á að borga framlag í lífeyrissjóð vegna þeirrar vinnu sem er verið að vinna þá er verið að rýra launakjör viðkomandi starfsmanns um 11,5%. Það er bara þannig. Þessi starfsmaður, sem er orðinn 70 ára, er á 11,5% lægri launum en starfsmaðurinn sem er 69 ára. Þannig er það bara. Maður veltir fyrir sér: Hvernig urðu lífeyrissjóðir til? Hvernig bjuggum við til lífeyrissjóði? Jú, lífeyrissjóðir urðu til vegna vinnu sem fólk er að skila, eru afleiðing af vinnu. Fólk fær framlag frá vinnuveitanda; í stað þess að fá þetta í launum fékk það framlag frá vinnuveitanda sem átti að geymast og greiða út síðar þegar það færi á eftirlaun. Það hefði kannski verið hægt að semja um að þetta ætti bara að fara inn í laun en ákveðið var að hafa fyrirkomulagið svona og búa til söfnunarsjóði með því að vinna. En nú á að taka þetta af fólki af því að það er orðið 70 ára en það er samt að vinna. Mér finnst þetta skrýtið. Ég hef talað um þetta við samtök lífeyrissjóða og þeim finnst þetta líka sérstakt. Það væri í sjálfu sér rétt að taka af allan vafa hvað þetta varðar í kjarasamningum og loka fyrir það gat svo að atvinnurekendur geti ekki tekið af afleidda greiðslu í lífeyrissjóð bara af því að fólk er orðið þetta gamalt. Ég legg bara áherslu á að þetta sé skoðað sérstaklega því að annars er ekki verið að bæta kjör og réttindi fólks heldur rýra.