Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

heilbrigðisstarfsmenn.

987. mál
[17:09]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið og aftur erum við bara að hugleiða. Ég held að við getum alveg orðið bandamenn í því að breyta þessu kerfi þannig að fólk fái hreinlega bara að vinna lengur en til sjötugs, burt séð frá því í hvaða starfsstétt það er, að starfsmenn ríkisins geti þá bara valið um það og sá réttur sé ekki tekinn af þeim. Ég þekki ágætlega til á íslenskum vinnumarkaði hafandi verið formaður stéttarfélags í rúma tvo áratugi. Tímavinnusamningar eða greiðsla í tímavinnu á aldrei að verða verri en fastlaunasamningar. Það er þá bara eitthvað að hjá ríkinu af því að það er bara fyllt út með fjölda tíma til að finna út tímavinnukaup. Annars er bara verið að svindla á fólki. Það ætti ekki að vera þannig að tímavinnusamningar séu eitthvað lélegri en fastlaunasamningar — fólk vinnur bara í X marga tíma á mánuði og svo er bara deilt í það og þá fæst tímavinnukaupið. Ég átta mig ekki alveg á þessu.

Mér finnst óeðlilegt að það sem búið er að ná fram í kjarasamningum — ef við erum að fara að breyta því, fella það niður, burt séð frá aldri, þá finnst mér það óréttlátt, að það sé ekki verið að borga afleiddar greiðslur. Við höfum gott dæmi hér á þingi. Hér er þingmaður sem er kominn yfir sjötugt, hann fær ekki framlag í lífeyrissjóð. Af hverju? Hann er að vinna sína vinnu alveg eins og ég og ég fæ framlag í lífeyrissjóð en ekki hann. Maður veltir fyrir sér hvaða réttlæti sé í þessu.

Hæstv. félagsmálaráðherra er búinn að boða það í fjármálaáætlun að taka eigi út fjármuni sem hafa verið nýttir í jöfnun lífeyrisréttinda til þess að bæta örorkubætur. Þetta er kjarasamningsbundið ákvæði sem varð til í kjarasamningum fyrir meira en áratug. (Forseti hringir.) Ef hægt er að fara svona með samningsbundin réttindi fólks þá mun ég standa hér og mótmæla.