heilbrigðisstarfsmenn.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Guðnýju Birnu Guðmundsdóttur hennar innlegg hér í umræðuna, sem er mjög mikilvægt. Ég er sammála hv. þingmanni, við þurfum að finna samhliða út úr þessu. Við getum gert mjög margt, bæði í þeirri umræðu sem við áttum hér á undan um starfsöryggið og aðbúnaðinn og öryggi sjúklinga og þennan gagnkvæma þátt sem snýr almennt að öryggi í starfi. Við getum gert fjölmargt, tryggt aðbúnaðinn, heimilað fólki að vinna lengur, bætt kennsluaðbúnað með hermisetrum og færnibúðum, fjölgað námsplássum og skoðað verkaskiptingu eins og víðast er verið að skoða. Þá þurfum við jafnframt að skoða — auðvitað blasir alltaf við að laun skipta máli og við bindum vonir við að sanngjarn kjarasamningur náist. Þetta er erfitt starf, það er miserfitt eftir því hvar það er í kerfinu, og aðstæður eru oft mjög knýjandi. Það er ekki bara líkamlega erfitt á stundum heldur getur það tekið verulega á. Við þurfum að komast að því af hverju við erum að missa reynslumikið fólk út úr kerfinu. Það er vond þróun. Við vonum að það sem hér hefur verið nefnt muni hjálpa til. En þetta er vissulega áhyggjuefni eins og hv. þingmaður fór yfir miðað við starfsleyfi og svo þá sem eru starfandi. En svo erum við auðvitað í þessari innbyrðis samkeppni. Þetta er vel menntað fólk og það eru fjölmargar aðrar greinar sem eru að kalla eftir fólki.