153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

heilbrigðisstarfsmenn.

987. mál
[17:23]
Horfa

Guðný Birna Guðmundsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka heilbrigðisráðherra fyrir andsvörin. Málið er líka þetta alvarlegt út af því að við höfum í allt of mörg ár horft á þetta gerast. Við höfum horft á heilbrigðiskerfið okkar, við höfum hlustað á fólkið okkar; fólk hefur hætt og við höfum brugðist allt of seint og illa við. Það er líka stór hluti vandans. Við höfum haldið að þetta myndi leysast, fólk myndi ekki hætta, fólk myndi ekki finna sér eitthvað annað að gera. Þrátt fyrir ítrekaðan fréttaflutning og kvartanir þá höfum við einhvern veginn horft á þetta. Ég held að við séum tiltölulega sein að bregðast við þessum áhyggjuröddum en fagna því, eins og ég kom inn á áðan, að það er þó verið að gera eitthvað. Þetta er ákveðin byrjun. Ég veit ekki hverju það mun skila. Ég veit ekki hvort ég myndi fara aftur að vinna í þessu kerfi sjötug, ég get ekki sagt til um það. En þetta er áhugavert og þetta er stórt vandamál, við vitum það, og þetta er alþjóðlegt. En ég held að við höfum í allt of mörg ár horft á þetta gerast og ekki brugðist við.