heilbrigðisstarfsmenn.
Virðulegi forseti. Við ræðum hér frumvarp sem felur í sér tillögu um nýtt lagaákvæði sem veitir heimild til undanþágu frá reglunni um 70 ára hámarksaldur ríkisstarfsmanna en kveðið er á um það í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og fleiri undanþágur í tengslum við þetta. Um er að ræða bráðabirgðaákvæði í fimm ár. Þó svo að þetta eigi sérstaklega við um heilbrigðisstarfsmenn, það frumvarp sem við ræðum hér, þá hefur þessi umræða átt sér langan aðdraganda, bæði hér í þingsal sem og í samfélaginu öllu. Þjóðin er að eldast og fólk vill a.m.k. hafa valið og geta kosið að vinna lengur.
Í greinargerð frumvarpsins segir:
„Heilbrigðisstofnunum í eigu ríkisins er undantekningarlaust gert að segja upp ráðningarsamningi við allt starfsfólk þegar það nær 70 ára aldri og engu máli skiptir þótt vinnuveitandi og starfsmaður vilji báðir að viðkomandi starfsmaður starfi áfram.“
Sú breyting sem hér um ræðir er liður í stefnu að því markmiði að tryggja fullnægjandi mönnun í heilbrigðisþjónustu en einnig er verið að skoða fleiri mögulegar leiðir til að ná því markmiði. Við vitum alveg að það þarf ýmiss konar úrræði og þetta eitt og sér mun ekki verða til þess að við náum því, en eflaust mun það hjálpa að einhverju leyti. Það er þar af leiðandi nauðsynlegt að gera þá lagabreytingu sem hér um ræðir.
Meðalævi Íslendinga hefur lengst töluvert frá því að grunnurinn að þessari 70 ára reglu var settur en það var árið 1947. Þjóðin lifir lengur og við betri heilsu sem betur fer og lífslíkur á Íslandi eru með þeim hæstu í Evrópu. Á Alþingi hefur oft verið rætt um möguleikann á að hækka aldurshámark starfsmanna ríkisins, líkt og ég kom að hér áðan, og þá sérstaklega í tengslum við hækkandi lífaldur. Það að vera 70 ára í dag er ekki það sama og að vera 70 ára fyrir 30 árum. En þrátt fyrir að Alþingi hafi samþykkt þingsályktunartillögu um hækkun hámarksaldurs starfsmanna ríkisins árið 1981 og svo aðra tillögu árið 2000, þar sem skorað var á ríkisstjórnina að skipa nefnd sem móta átti tillögur um sveigjanleg starfslok, hefur hámarksaldur ríkisstarfsmanna samt sem áður ekki verið hækkaður síðan árið 1947. En samkvæmt gögnum frá heilbrigðisráðuneytinu hækkaði lífaldur Íslendinga um tæp tíu ár á árunum 1961–2021 og er nú rúm 83 ár. Svo framangreint sé sett í samhengi við efni frumvarpsins hefur við setningu hámarksaldursins 1947 verið litið til þess að starfsmenn nytu eftirlauna frá 70 ára aldri og lifðu þá að meðaltali í um þrjú og hálft ár frá starfslokum ef tekið er mið af meðalævilengd ársins 1961. En sé sama viðmið sett í dag, út frá tölum um meðallífaldur frá árinu 2021, væri hámarksaldur ríkisstarfsmanna um 80 ár.
Í frumvarpinu er sérstaklega tekið fram að ekki sé verið að hreyfa við lífeyristökualdri eða ellilífeyrisaldri heldur sé einungis verið að veita þeim starfsmönnum ríkisins sem eru heilbrigðisstarfsmenn aukinn möguleika á sveigjanlegum starfslokum, þ.e. að kjósi þeir og hafi burði til og vilja þá sé þessi möguleiki fyrir hendi. En það eru einmitt skilyrðin fyrir þessum sveigjanlegu starfslokum að starfsmaður hafi heilsu og óski þess að geta starfað eftir að hafa náð 70 ára aldri. En við þurfum líka að hafa í huga að um er að ræða fimm ára undanþágu frá lögunum og þau eru til bráðabirgða og því mun okkur gefast tækifæri á þessum tíma til að meta áhrifin sem þetta hefur og taka þá afstöðu til þess hvort þetta sé að ganga vel og hvort það eigi að framlengja þetta og þá hvort grípa þurfi til einhverra frekari ráðstafana eða breytinga.
Við vitum að heilbrigðisþjónustan verður ekki veitt án heilbrigðisstarfsfólks og hluti þess er kominn á aldur og býr yfir gríðarlega mikilli þekkingu og reynslu á sínu sviði. Þetta er mjög dýrmætur mannauður sem við höfum. Aftur vil ég vitna beint í greinargerð frumvarpsins, með leyfi forseta:
„Samfélagið hlýtur beinlínis tjón af því að svipta það möguleikanum til að sinna heilbrigðisþjónustu og miðla þekkingu sinni til yngra og reynsluminna heilbrigðisstarfsfólks, eingöngu sökum aldurs.
Samkvæmt gögnum heilbrigðisráðuneytisins liggur fyrir að umtalsverður hluti heilbrigðisstarfsmanna sem starfar nú hjá ríkinu nálgast eftirlaunaaldur. Hár meðalaldur þeirra er umhugsunarverður en af heilbrigðisstarfsmönnum í störfum hjá ríkinu eru 31% lífeindafræðinga, 28% sjúkraliða, 25% ljósmæðra og 20% lækna og hjúkrunarfræðinga 60 ára og eldri. Án lagabreytinga verður áfram óhjákvæmilegt að segja þeim upp störfum við 70 ára aldur.“
Virðulegi forseti. Í dag grípa stjórnendur heilbrigðisstofnana til þeirra örþrifaráða að gera tímavinnu- eða verktakasamninga við heilbrigðisstarfsfólk en þeim er í dag heimilt, þrátt fyrir regluna um 70 ára hámarksaldur, að gera samninga um vinnuframlag starfsmanna eftir sjötugt. Þessir samningar veita þeim þó ekki sama rétt og eiginlegir ráðningarsamningar. Má þá telja upp m.a. verri kjör varðandi rétt til veikinda, kjara og orlofs auk þess sem starfsmaður getur einnig tekið á sig töluverða launalækkun. Þessi atriði leiða af sér að störf eftir sjötugt geta orðið fráhrindandi og heilbrigðisþjónustan farið á mis við starfsframlag dýrmætra starfsmanna. Þessum atriðum þarf að breyta þannig að heilbrigðisstofnanir eigi þess kost að bjóða starfsfólki yfir þessum aldri áframhaldandi sanngjörn kjör með ráðningarsamningi sem er betri en mögulegt er við núverandi aðstæður.
Það er því afar mikilvægt fyrir okkur ef mögulegt er að auðvelda þessari breytingu brautargengi hér í þinginu. Ef það skref sem þetta frumvarp felur í sér verður ekki stigið verður áfram skylt að slíta ráðningarsambandi milli ríkis og heilbrigðisstarfsfólks við 70 ára aldur þrátt fyrir góða heilsu og áhuga og vilja starfsmanns og þrátt fyrir að áframhaldandi þörf sé á hans vinnuframlagi. Ég tel því að við ættum öll að vera jákvæð fyrir þessari tillögu hér, meta reynsluna að þessum fimm árum loknum og vera þá tilbúin til að ráðast í breytingar ef þörf er á. Ég tel einnig afar mikilvægt að taka undir orð hæstv. ráðherra hér um að hvetja til þess að vinnu gagnvart öðrum stéttum verði hraðað þannig að við getum stigið áfram þannig að fleiri einstaklingar sem vilja vinna lengur hafi þá tök á því.