heilbrigðisstarfsmenn.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sín viðbrögð. Einhvern veginn hef ég á tilfinningunni að við munum bera gæfu til þess hér á þessu þingi að blása vitleysuna af borðinu í víðasta samhengi, í víðasta skilningi orðsins. Sem betur fer hefur almennur lífaldur hækkað hér, eins og nefnt var, um næstum tíu ár frá því að þessi lög voru sett og átrúnaðargoð æsku minnar sem eru núna á níræðisaldri, þar nefni ég Paul McCartney og Mick Jagger, eru í fullu fjöri úti um allar koppagrundir með, að því er virðist, svipaða orku og þeir voru á unglingsárum og svo er um marga fleiri af minni kynslóð, marga sem ég þekki. Ef ég ætti að tala fyrir sjálfan mig þá get ég fullyrt að ég bý að sjálfsögðu að mun meiri reynslu og visku og orku en ég gerði 30 ára gamall. Ég held að svo sé um ýmsa fleiri. Þá kann að vera samhengi á milli þess sem maður býður musteri sálarinnar upp á, hvenær menn átta sig á samhenginu milli þess að hella eitri ofan í heilabúið á sér árum og áratugum saman og þess kannski að missa fókus og heilsu, samhengið á milli hreyfingar, fæðu og ýmissa annarra þátta. Fyrir þjóð sem er að upplifa mikinn skort á reyndu og góðu starfsfólki þá segi ég nú bara: Mikið er þetta tímabært og þarft mál og skref sem hér er verið að stíga. Ég legg til að við tökum höndum saman um að samþykkja það einróma.