heilbrigðisstarfsmenn.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Loga Einarssyni fyrir hans innlegg og þakka honum jafnframt sérstaklega fyrir að taka þennan vinkil, þessa áskorun sem fylgir því að halda uppi þjónustu á landsbyggðinni. Ég ítreka það að ég er alveg sammála því þegar kemur að jafnræði, ég myndi vilja sjá þá breytingu sem hér er verið að leggja til gilda um allar stéttir. Ég bind vonir við að þessi breyting verði jákvæð fyrir kerfið í heild sinni. Þetta mun ekki, eins og fram hefur komið hér og hv. þingmaður kom inn á, leysa mönnunarvanda alls kerfisins. En með þessu, ásamt því að bregðast við með fjölmörgum öðrum aðgerðum þannig að við sitjum ekki hjá áfram og horfum á, þá bind ég vonir við að það hafi jákvæð áhrif á kerfið, þ.e. að fólk í fullu fjöri sem hefur fullan vilja til að vinna áfram á sambærilegum kjörum sé þá ekki nauðbeygt til að hætta vegna þess að reglurnar segi manni að gera það. Ég bind vonir við að þetta frumvarp geti haft jákvæð áhrif á byggðarlög. Eins og hv. þingmaður kom inn á búum við þar oft að mjög reynslumiklu fólki sem er búið að eiga farsælan starfsferil og byggja upp öryggi á því svæði þannig að þetta getur svo sannarlega hjálpað til. Ég vil bara skilja það eftir sem spurningu til hv. þingmanns hvort hann telji ekki (Forseti hringir.) að þessi breyting geti haft jákvæð áhrif á byggðarlög þar sem þjónusta stendur einmitt tæpt og hvílir á færri, eðli málsins samkvæmt.