heilbrigðisstarfsmenn.
Frú forseti. Jú, jú og ég vona að það hafi ekki skilist þannig að ég hafi lýst mig alfarið neikvæðan gagnvart þessu frumvarpi. Ég held að þetta ásamt ýmsu öðru geti alveg örugglega verið framfaraskref, bæði vegna mönnunarvanda heilbrigðiskerfisins en auðvitað líka bara sem almenn stefnubreyting hvað varðar viðhorf til fólks á þessum aldri. Ég stóð mig nú samt að því að velta því fyrir mér áðan hvort ég myndi treysta mér til þess, 72 ára gamall, að búa austur á Melrakkasléttu og þurfa að fara yfir 150–200 km svæði í öllum veðrum, einn og án nokkurrar aðstoðar, alltaf á bakvakt, hvernig það myndi fara með mig. Við megum ekki búa til þannig aðstæður að þessu fólki, sem er búið að leggja gríðarlega mikið á sig í áratugi, finnist það vera samfélagsleg skylda þess að sinna starfinu áfram. Við þurfum þá að koma þannig fram við að það velji það og það er það sem ég er að meina. Ég spyr hvort hæstv. ráðherra geti hugsað sér að við veltum því fyrir okkur að í þessum dreifðustu byggðum úti á landi þá verði alltaf par af læknum og hjúkrunarfræðingum þannig að þau geti leyst hvert annað af og komist í frí. Síðan ættum við auðvitað núna að vera að ræða hvort við teljum það raunhæft með erfiðustu störfin líkamlega, sem eru kannski í þessum fjölmennu kvennastéttum, t.d. sjúkraliða, að konur í flestum tilfellum, sem eru búnar að slíta sér út við erfið umönnunarstörf, hafi yfirleitt næga orku til að geta unnið eftir ákveðinn aldur. Ég er ekki viss. Auðvitað getur velferðartæknin hjálpað okkur eitthvað. Þetta eru gríðarlega erfið líkamleg störf miðað við smánarlega lág laun.