153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

heilbrigðisstarfsmenn.

987. mál
[17:53]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið og gat svo sem alveg gefið mér það að við værum í kjarnann sammála um að þetta geti hjálpað til og sé að mestu jákvætt. Ég dró sérstaklega úr þessu svari hv. þingmanns þessa samfélagslegu skyldu. Við megum ekki skilja hana eftir. En það er auðvitað þannig að þær forsendur verða að vera til staðar að það sé vilji til að vinna áfram og geta samhliða og vilji stofnunar til að halda viðkomandi áfram í vinnu og svo auðvitað að við séum með getu og færni til þess. Það verður eftir sem áður alltaf val einstaklingsins. En já, það verður áfram áskorun, eins og hv. þingmaður kom inn á hér, að manna kerfið okkar og ekki síst í okkar dreifðu byggðum. En það er mikilvægt í því skipulagi að við getum nýtt alla okkar starfskrafta þegar vilji stendur til þess.

Mig langar í seinna andsvari að spyrja hv. þingmann út í þá atvinnustefnu sem við erum að fara hér fram með — og er í raun á undan því að sú vinna er í gangi og er í stjórnarsáttmála þessarar hæstv. ríkisstjórnar að breyta stefnunni í þessa veru sem við erum að taka af skarið með hér — hvort það sé hans skoðun að við eigum að hafa þetta val að vinna áfram og það gildi um allar starfsstéttir.