153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

heilbrigðisstarfsmenn.

987. mál
[17:58]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Loga Má Einarssyni fyrir sitt innlegg hér sem var þarft og honum líkt, vel hugsað og ígrundað. Ég vil taka sérstaklega fram, vegna ákveðins orðalags í upphafi ræðu hans, að það að ég sé sérstaklega ánægður með þetta frumvarp, að fólki sé gefinn kostur á því að vinna lengur en til sjötugs, felur að sjálfsögðu ekki í sér að neinum beri skylda til þess. Ég tel að það megi alveg taka upp einhvers konar skoðunarkerfi, líkt og við teljum sjálfsagt með bílana okkar, að menn fari sjálfviljugir einu sinni á ári í almennt heilsutékk, að heyrn, sjón og viðbrögð og annað séu könnuð, þannig að allir geti verið vissir um að þarna sé fullveðja, góður og öruggur starfsmaður á ferð, að sjálfsögðu. Þetta á að vera sjálfviljugt val þeirra sem hafa orkuna, viljann og allt það.

Nú vill svo til að ég hafði einu sinni hugsað mér að verða læknir af því að mér fannst eins og það væri að líkindum göfugasta og besta starf sem hægt væri að hugsa sér. En tónlistargjöfin hrifsaði þau áform af mér og ég held að það sé jafnvel enn meira gefandi að starfa á vettvangi tónlistar en á sviði lækna og læknavísinda. Ég tel mig því hafa verið lánsaman að hafa starfað við það allt mitt líf sem er sérstaklega gefandi, sérstaklega ánægjuríkt og eftirsóknarvert. Einungis þeir sem þannig líður myndu vera líklegir til að vilja halda áfram störfum sínum svo lengi sem heilsan leyfir og þeim á að sjálfsögðu að vera það frjálst, hvort sem þeir vilja sinna tónlist eða þingmennsku eða öðru.

Ég spyr hv. þingmann: Er hann ekki sammála því að reynsla og innsæi hinna eldri starfsmanna, (Forseti hringir.) sérstaklega á heilbrigðissviðinu, geti verið afar dýrmæt? Í mínu tilfelli bjargaði það bókstaflega lífi mínu fyrir tíu árum síðan.