heilbrigðisstarfsmenn.
Virðulegi forseti. Ég er þegar reiðubúinn að bjóða hv. þingmanni heilun, hálfun eða hvað sem væri þar á milli ef óskað væri. En gamanlaust vil ég segja að mér fannst það áhugaverður vinkill, ég hafði ekki hugleitt það, sem hv. þingmaður nefndi hér, að eins mikil og þörfin er fyrir blessaða læknana og hjúkrunarfólkið úti á landsbyggðinni þá er það kannski ekki heppilegt að setja slíkar kvaðir á þá sem væru eldri en gefa þeim kannski frekar kost á því að vinna í þægilegri og öruggari þéttbýliskjörnum. Ég get alveg hugsað mér að innleiða mætti tilfinningu fyrir einhvers konar þegnskyldu; það er nú innbyggt göfuglyndiselement í læknisstarfið. Líkt og sumar þjóðir kveða menn til einhverrar þegnskyldu gætum við sagt sem svo að yngri, ferskari og frískari læknarnir eigi að máta sig við landsbyggðina þar sem ökutúrarnir eru lengri og stundum tvísýnni og hættulegri. En það er líka alveg hárrétt að það er mikil vöntun og margir finna til mikils skorts á öryggistilfinningu sem búa fjarri þéttbýliskjörnum þar sem heilsugæsluþjónusta og sjúkrahús eru. Það er eitt af því sem þarf að taka á. Og bara það eitt að sjálf læknastéttin standi ekki lengur í vegi fyrir fjölgun lækna á Íslandi eins og hún gerði hér um árabil, einungis 10% þeirra sem spreyttu sig á prófum fengu að komast í gegn eða 20%, aðrir voru bara felldir og flosnuðu úr námi — er hv. þingmaður ekki sammála mér um að það, sem annað í þessum efnum, stefni til betri vegar? Við erum öll í grunninn sammála um mikilvægi læknisþjónustunnar, um mikilvægi þessa málaflokks sem við erum nú að brjóta blað í, vonandi, (Forseti hringir.) með því að fjölga læknum sem hafa til að bera innsæi, reynslu og þroska.